Einhver umdeildasta heimildamynd hinnar íslensku kvikmyndasögu, Fiskur undir steini, var sýnd á Bryggjunni í gær, í tilefni af 40 ára afmæli myndarinnar. Skemmst er frá því að segja að húsfyllir var á Bryggjunni en sýningin var samvinnuverkefni Bryggjunnar, Minja- og sögufélags Grindavíkur og Grindavíkurbæjar. Sérstakir gestir á sýningunni voru þeir Þorsteinn Jónsson leikstjóri myndarinnar og Jón Júlíusson, aðalleikari hennar.
Áður en sýningin hófst hélt Þorsteinn stutta tölu, þar sem hann talaði um viðbrögðin sem myndin vakti á sínum tíma. Sennilega hefur engin mynd vakið jafn sterk viðbrögð hjá þjóðinni, nema þá kannski þáttaröðin ,,Þjóð í hlekkjum hugarfarsins".
Þorsteinn sagði að myndin hefði stuðað marga, ekki bara Grindvíkinga heldur þjóðina alla, en lesendabréf voru að birtast í blöðum um myndina mörgum árum eftir sýningu hennar. Eftir á að hyggja sagði Þorsteinn að vissulega væru nokkrir broddar í myndinni sem gætu stuðað en heilt yfir gefur myndin raunsanna mynd af lífinu eins og það var í sjávarplássum landsins fyrir 40 árum þar sem menn unnu baki brotnu myrkranna á milli og höfðu lítinn tíma til að njóta menninga og lista. Sennilega hefur Íslendingum einfaldlega brugðið að sjá þarna spegli brugðið á loft og þeir þurftu að horfast í augu við þann raunveruleika sem við bjuggum við.
Fyrir okkur Grindvíkinga er myndin í dag fyrst og fremst ómetanleg söguleg heimild um lífið í bænum fyrir 40 árum og gluggi inn í fortíðina þar sem að sjá má t.d. malargötur um allan bæ og Festi og Aðalbraut efstu og ystu húsin í bænum. Enginn sem sá myndina í gær tók efni hennar nærri sér og raunar var góður rómur gerður að henni og vonandi verður hún sýnd oftar á Bryggjunni svo að fleiri geti notið hennar.
Alli peppaði mannskapinn áður en sýningin hófst
Þorsteinn Jónsson leikstjóri fyrir sýningu
Þorsteinn eftir sýningu.
Jón Lennon, Jón Júlíusson og Þorsteinn Jónsson.