Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á jólanammigerðarnámskeið sem eldhúskokkurinn Ebba mun standa fyrir í Miðstöð Símenntur á Suðurnesjum hér í Grindavík þann 6. nóvember. Allar nánari upplýsingar hér að neðan:
,,Sjónvarpsgyðjan Ebba heldur fyrirlestur um hollan lífstíl og hvernig við getum útbúið okkur góðgæti sem hefur góð áhrif á heilsuna. Á fyrirlestrinum mun Ebba mun leiðbeina um hvernig best er að bera sig að til gera eitthvað gott sem þarf þó ekki að vera óhollt áður en jólahátíðin, mesta sykurtímabil ársins gengur í garð. Hún kynnir fyrir okkur allskyns hráefni úr jurtaríkinu sem gott er að taka inn í mataræðið, býður uppá smakk og lætur einfaldar uppskriftir fylgja með.
Leiðbeinandi: Ebba Guðný Guðmundsdóttir
Hvar: Hjá MSS Grindavík
Tími: 06. nóvember kl. 19:00 til 20:30
Verð: kr. 7.000
Upplýsingar gefur Ragga í síma 412-5967 og ragga@mss.is
Skráning á www.mss.is"