null
446. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 28. október 2014 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson Bæjarfulltrúi, Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm Bæjarfulltrúi, Guðmundur L. Pálsson Bæjarfulltrúi, Kristín María Birgisdóttir Bæjarfulltrúi, Marta Sigurðardóttir Bæjarfulltrúi, Jóna Rut Jónsdóttir Bæjarfulltrúi, Ásrún Helga Kristinsdóttir Bæjarfulltrúi, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. 1304014 - Endurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu
Til máls tóku: Kristín María, Róbert, Guðmundur og Hjálmar
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði hann fyrirspurnum.
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu óska eftir athugasemdum við tillögu um endurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu.
Grindavíkurbær hefur krafist aðkomu að verkefninu því heildarendurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðisinu gæti haft veruleg áhrif á landnýtingu innan Grindavíkurbæjar. Því er eðlilegt að unnið sé að þessu verkefni í nánu samstarfi við Grindavíkurbæ. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa ekki svarað þeirri kröfu Grindavíkurbæjar og með því telur Grindavíkurbær að verið sé að sýna ákveðna vanvirðingu og yfirgang. Grindavíkurbær hefur jafnframt lýst afstöðu sinni við Hafnarfjarðarbæ.
Bæjarstjórn lítur svo á að sveitarfélagið sé ekki almennur hagsmunaaðili, og því ekki bundið af athugasemdafresti til 10. nóvember. Bæjarstjórn hefur leitað álits lögmanns á málinu og mun veita umsögn þegar það liggur fyrir.
2. 1410043 - Umsókn um byggingarleyfi að Hólmasundi 1
Til máls tók: Kristín María
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
H.H. smíði sækir um byggingarleyfi fyrir iðnaðarhúsnæði við Hólmasundi 1. Erindinu fylgja teikningar unnar af G.Á.G verk- og tækniráðgjöf.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að erindið verði samþykkt og byggingarleyfi gefið út af byggingarfulltrúa þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
Byggingaáformin eru samþykkt samhljóða.
3. 1410041 - Umsókn um byggingarleyfi að Ægisgötu 2
Til máls tók: Kristín María
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Jóhann Vignir Gunnarsson sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á útliti á löndunarhúsi við Svíragarð. Erindinu fylgja teikningar unnar af Verkfræðistofu Suðurnesja.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að erindið verði samþykkt og byggingarleyfi gefið út af byggingarfulltrúa þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
Byggingaáformin eru samþykkt samhljóða.
4. 1409043 - Umsókn um deiliskipulag, vindmylla á Stað.
Til máls tóku: Kristín María, Marta, Guðmundur, Bryndís og Hjálmar
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði hann fyrirspurnum.
Erindi frá Biokraft ehf. Í erindinu er lýst áætlunum um uppbyggingu vindmyllu á Stað. Mastur vindmyllunnar er 40 m, þvermál blaðahrings er 44 m og mun mannvirkið því ná 62 m hæð. Hluti skipulags- og umhverfisnefndar fór í skoðunarferð í Þykkvabæ þann 15. október sl. og hittu forsvarsmenn Biokraft og skoðuðu samskonar vindmyllur.
Skipulags- og umhverfisnefnd telur mannvirkið ekki falla vel að þeirri náttúru sem er í nágrenni Grindavíkur. Sem stendur er mikil vinnsla á vistvænni orku í sveitarfélaginu í gegnum jarðvarma og ekki fyrirséð orkuþörf sem kalli eftir uppsetningu vindmyllna við strandlengju sveitarfélagsins.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að erindinu verði hafnað.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar og beinir því til nefndarinnar að við endurskoðun aðalskipulags verði metið hvort og þá hvar heimilt verði að reisa vindmyllur innan skipulagsmarka Grindavíkur.
5. 1409124 - Umsókn um framkvæmdaleyfi, förgunarhola SVAN 7 í Svartsengi
Til máls tók: Kristín María
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
HS Orka hf. óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir niðurdælingarholu SVAN-7 í Svartsengi. Fyrirhuguð hola er á röskuðu svæði við norðurenda Bláa lónsins.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að erindið verði samþykkt.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkvæmdaleyfið
6. 1410013 - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir sjávarlögn frá Svartsengi til sjávar.
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Bryndís og Hjálmar
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði hann fyrirspurnum.
HS Orka hf. óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir affallslögn frá Svartsengi til sjávar. Erindinu fylgir skýrsla og teikningar unnar af VSÓ ráðgjöf frá október 2014. Fyrirhuguð lögn er alls um 4,5 km að lengd. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2010-2030. Fyrir liggur ákvörðun Skipulagsstofnunar dags. 23.11.2012 og er fráveitulögn fyrir affallsvatn frá niðurdælingarsvæði við orkuverið í Svartsengi til sjávar ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og er því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að framkvæmdaleyfi verði veitt, en leggur til að það verði bundið þeim skilyrðum að belti fyrir uppgrafið efni meðfram fyrirhugaðri lögn verði fjarlægt og raski verði haldið í lágmarki.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkvæmdaleyfið og leggur áherslu á að framkvæmdaleyfið verði skilyrt með sömu skilyrðum og nefndin leggur til.
7. 1410052 - Niðurlagning Héraðsnefndar Suðurnesja
Til máls tóku: Kristín María, Bryndís, Guðmundur og bæjarstjóri
Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum leggur til að Héraðsnefnd Suðurnesja verði formlega lögð niður, en nefndin hefur ekki haft lögformlegt hlutverk um árabil. Stjórn SSS leggur til að sambandinu verði falið að taka yfir hlutverk Héraðsnefndarinnar.
Tillaga
Bæjarstjórn frestar afgreiðslu þar til álit lögmanna um það hvaða eignir eða jarðréttindi eru hjá Héraðsnefnd Suðurnesja.
Samþykkt samhljóða
8. 1408052 - Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2015-2018
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir helstu atriðum áætlunarinnar.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Bryndís, Marta, bæjarstjóri, Jóna Rut og Hjálmar
Tillaga
Svo virðist sem allir bæjarfulltrúa séu sammála um að mikil vinna sé eftir við vinnu fjárhagsáætlunar Grindavíkur 2015-2018. Gögnin sem nú liggja fyrir gefa ekki tækifæri á gagnrýnni umræðu. Svigrúm er til staðar að fresta fyrri umræðu fram til bæjarstjórnarfundar í nóvember og að seinni umræða verði þá tekin á bæjarstjórnarfundi í desember. Því leggur fulltrúi S-lista til að fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Grindavíkur 2015-2018 verði frestað til næsta bæjarstjórnarfundar.
Tillagan er felld með 4 atkvæðum gegn 3.
Tillaga
Fulltrúar B-lista leggja til að fjárhagsáætlun Grindavíkur 2015-2018 verði vísað til annarrar umræðu sem skal fara fram á desemberfundi bæjarstjórnar en þannig gefst bæjarstjórn meira svigrúm til að klára fjárhagsáætlunina án tímapressu.
Tillagan er felld með 4 atkvæðum gegn 3.
Tillaga
Forseti leggur til að áætluninni verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn 25. nóvember næstkomandi.
Samþykkt með 6 atkvæðum, Marta situr hjá.
Bókun
Gögn sem tekin eru hér til fyrri umræðu eru unnin með svipuðum hætti og verið hefur undanfarin ár. Tíminn er nægur fram að næsta bæjarstjórnarfundi til að ljúka þeirri vinnu sem eftir er. Komi í ljós að svo sé ekki verður síðari umræðu frestað um viku.
Fulltrúar D- og G- lista
9. 1303048 - Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Bæjarstjóri fór yfir tillögu að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar, sbr. 9. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 sem lögð er fram til síðari umræðu. Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Bryndís og Guðmundur
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna og vísar henni til staðfestingar innanríkisráðherra.
10. 1309091 - 40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Til máls tók: Kristín María
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins vegna 40 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar til að greiða afmælisnefndinni nefndarlaun, með vísan til nýsamþykktra reglna um nefndalaun tímabundinna nefnda og starfshópa.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun að fjárhæð 575.000 kr. sem komi til hækkunar á heimild afmælisnefndarinnar og lækkunar á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðaukann.
11. 1409042 - Beiðni um stærra kaldavatnsinntak. Miðgarði 3
Til máls tók: Kristín María
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 9. september að leggja nýja kaldavatnslögn frá brunni við gatnamót Hafnargötu og Ránargötu að Miðgarði 3 vegna breytinga á húsnæði.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við eignfærða fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 16 milljónir kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðaukann.
12. 1410039 - 245.fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja
Til máls tók: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram.
13. 1410047 - 681. fundur haldin í stjórn S.S.S. Fundarboð og fundargerð.
Til máls tók: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram.
14. 1410008 - 92.fundur þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum
Til máls tók: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram.
15. 1410046 - Fundargerð 38. aðalfundar S.S.S.
Til máls tóku: Kristín María, bæjarstjóri
Fundargerðin er lögð fram.
16. 1410007F - Fræðslunefnd - 31
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut, Bryndís, bæjarstjóri, Marta, Ásrún, Hjálmar og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram.
17. 1410004F - Félagsmálanefnd - 44
Til máls tóku: Kristín María, Bryndís, Marta, Guðmundur og Jóna Rut
Fundargerðin er lögð fram.
18. 1410010F - Félagsmálanefnd - 45
Til máls tóku: Kristín María, Bryndís, Marta, Guðmundur og Jóna Rut
Fundargerðin er lögð fram.
19. 1410002F - Bæjarráð Grindavíkur - 1362
Til máls tóku: Kristín María, Marta, Bryndís og Jóna Rut
Fundargerðin er lögð fram.
20. 1410006F - Bæjarráð Grindavíkur - 1363
Til máls tóku: Kristín María og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram.
21. 1410009F - Bæjarráð Grindavíkur - 1364
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur og Marta
Fundargerðin er lögð fram.
22. 1410005F - Hafnarstjórn Grindavíkur - 430
Til máls tók: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram.
23. 1409018F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 46
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur og Marta
Fundargerðin er lögð fram.
24. 1409011F - Frístunda- og menningarnefnd - 35
Til máls tóku: Kristín María og Bryndís
Fundargerðin er lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:50.