Sumarið var venjulega frekar rólegur tími í Grindavíkurhöfn. Vetrarvertíðin að baki og margir bátar búnir með kvótann það fiskveiðiárið. Landanir voru í lágmarki yfir sumarið og þeir sem voru á ferðinni við höfnina voru helst að sinna viðhaldi fyrir komandi vetur. En undanfarin ár hefur orðið algjör viðsnúningur og landanir yfir sumarið hafa jafnvel skagað hátt upp í fjölda landanna á hávertíð. Má rekja þessa aukningu nær alfarið til stóraukins makrílsafla en makrílmiðin hafa verið hér nánast í túnfætinum þar sem menn hafa verið að moka honum upp hér í innsiglingunni.
Þá hafa stærri skip séð hag sinn í því að koma inn til Grindavíkurhafnar með sinn afla þó svo að hann sé ekki unninn hér þar sem að þjónustan í kringum höfnina er alltaf að verða betri og betri. Hin nýja löndunarþjónusta Fiskmarkaðs Grindavíkur og trekkir að aðkomubáta sem hefðu sennilega ekki landað hér ef engin væri löndunarþjónustan. Þá hefur löndunarþjónusta Þorbjarnar einnig útvíkkað sína þjónustu og bjóða þeir nú upp á löndunarþjónustu fyrir aðra báta en sína eigin.
Á skrifstofu Sigurðar A. Kristmundsson hafnarstjóra á hafnarvoginni er ys og þys og síminn stoppar varla meðan blaðamaður ræðir við hann.
„Aukin skipaumferð um höfnina kallar auðvitað á aukin umsvif og vinnu fyrir hafnarstarfsmenn, en einnig auknar tekjur. Ekki bara fyrir höfnina sjálfa heldur fyrir alla sem koma að lönduninni og vinnunni í kringum hana. Gróft áætlað eru kannski 30 manns sem fá eitthvað að sýsla í kringum hvert skip. Hver bátur sem landar hér er í raun ótrúleg innspýting í okkar litla samfélag." segir Sigurður.
Út um gluggann sjáum við yfir Suðurgarð þar sem starfsemin og erillinn er orðinn ansi mikill miðað við undanfarin ár. Rústir gömlu beinamjölsverksmiðjurnar hafa verið hreinsaðar en á svæðinu er búið að skipuleggja lóðir fyrir áframhaldandi uppbyggingu sjávarútvegsfyrirtækja og hefur Þorbjörn flutt aðstöðu sína fyrir togara þangað og hyggja á frekari umsvif þar. Beint fyrir framan okkur er verið að landa túnfiskum úr Jóhönnu Gísladóttur frá Vísi sem eru afar spennandi veiðar fyrir grindvískan sjávarútveg.
Hér áður fyrr veigruðu menn það fyrir sér að sigla inn til Grindavíkurhafnar enda var innsiglin oft varhugaverð. Á síðustu árum hefur verið lagt í miklar endurbætur á innsiglingunni og er það í raun orðinn hálfgerður barnaleikur að sigla um hana miðað við það sem áður var. Þá eru aðstæður innan hafnar orðnar til fyrirmyndar, öryggi og þjónusta eru kjörorð hafnarinnar og alltaf verið að bæta í ásamt því að veita þjónustu í fremstu röð.
Nýir og stærri bátar kalla á viðbrögð frá hafnaryfirvöldum og hafnarþjónustu til að mæta tækniþróun og grósku í greininni. Litlu bátarnir eru að verða stórir og passa ekki jafn vel við flotbryggjurnar en þar sem togararnir hafa fært sig frá Eyjabakka eru hugmyndir á lofti um að nýta aðstöðuna sunnan við hann betur fyrir þá báta.
Sigurður er vongóður um að auknar tekjur hafnarinnar muni hjálpa til við að standa undir þeirri fjárþörf sem endurbætur á Miðgarði munu kosta. Hann er kominn vel yfir líftíma sinn og er brýnt verkefni að reka niður nýtt stálþil og endurbyggja hann frá grunni með tilheyrandi dýpkun. Ef ekki verður farið í þessar aðgerðir fljótlega er fyrirsjáanlegt að það verði einfaldlega að draga úr notkun á honum þar sem að hann verður of hættulegur til notkunar.
Verðlaunabás á Sjávarúvegssýningunni 2014
Grindavíkurbásinn á Íslensku sjávarúvegssýningunni sem haldin var í Kópavogi í lok september var verðlaunaður sem besti hóp- og landsvæðisbásinn á sýningunni. Þetta er mikil viðurkenning fyrir Grindavíkurhöfn og þau þjónustufyrirtæki sem standa saman að básnum. Þetta er í fyrsta skipti sem Grindavík tekur þátt í Íslensku sjávarúvegssýningunni með sameiginlegan bás en ellefu aðilar voru á básnum þar sem kynnt var framsækin hafnarstarfsemi í Grindavíkurhöfn og þjónusta við fiskiskip, í fremstu röð.