Fimmtudaginn 30. október klukkan 14:00 verður söngskemmtun í Miðgarði, félagsaðstöðu eldriborgara í Víðihlíð. Sigríður María Eyþórsdóttir söngkona mun syngja nokkur lög við undirleik Jóhanns Vignis Gunnarssonar og síðan ætlar Eyjólfur Ólafsson, fyrrum skólastjóri tónlistarskóla Grindavíkur að leika nokkur lög. Allir velkomir meðan húsrúm leyfir.