Bæjarlistamaðurinn Halldór Lárusson heldur tónleika á Salthúsinu laugardagskvöldið 15. nóvember kl. 21. Með honum leika m.a. Hallur Ingólfsson á gítar, Hörður Ingi Stefánsson á bassa, Jóhann Ingvason á hljómborð ásamt fleiri góðum gestum. Halldór leikur mest efni sem hann aðstoðaði vin sinn og tónlistarmann Hall Ingólfsson að flytja en Hallur gaf út sólóplötuna Öræfi ekki fyrir svo löngu. Einnig fljóta með lög sem hafa haft afgerandi áhrif á Halldór sem tónlistarmann.
Halldór hóf að leika á trommur 12 ára gamall. Hann byrjaði að læra á trommur hjá Guðmundi „Papa Jazz" Steingrímssyni en fór fljótlega í Tónlistarskóla Reykjavíkur og stundaði þar nám hjá Reyni Sigurðssyni á slagverk ýmis konar. Einnig stundaði hann einkanám hjá Birni Björnssyni á trommur samhliða því. Halldór lék á þessum árum t.a.m. með Sinfóníuhljómsveit æskunnar og ýmsum bílskúrshljómsveitum. 15 ára gamall var hann farinn að leika með sér miklu eldri tónlistarmönnum, t.d. á sveitaböllum út um landið. Einnig lék hann trommandi hermann í þekktri uppfærslu Íslensku Óperunnar á La Bohéme í Þjóðleikhúsinu 1980. Hann kom fram í kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar Rokk í Reykjavík og lék sína fyrstu tónleika í Laugardagshöll 16 ára gamall. Halldór hóf að leika með Bubba Morthens 1985, þá 21 árs. Eftir það lék hann með ýmsum tónlistarmönnum m.a. Bjartmari Guðlaugssyni,
Rúnari Júlíussyni, hljómsveitinni Júpíters, Valdimar Flygenring ásamt mörgum fleirum. Árið 1995 fluttist hann til Hollands þar sem hann starfaði sem tónlistarmaður út um alla Evrópu til ársins 2000 er hann fluttist aftur heim til Íslands. Mest starfaði hann með Gíneumanninum Seydouba Soumah. Síðan þá hefur hann komið víða við í tónlistinni og kennt á trommur og slagverk m.a. í tónlistarskólunum á Álftanesi, Garði, Grindavík og Sandgerði þar sem hann starfar nú einnig sem skólastjóri.