Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að ritstjórar Grindavík.is og Karfan.is hafa gengið til óformlegs samstarfs. Mun fréttaritari Grindavík.is skaffa umfjallanir um leiki Grindavíkur sem birtast á báðum síðum en á móti fær Grindavík.is aðgang að glæsilegu ljósmyndasafni Karfan.is. Er það von okkar hjá Grindavík.is að þetta framtak muni auka fjölmiðlaumfjöllun um leiki Grindavíkur, bæði karla- og kvennaliðs, en fyrsti pistillinn birtist í gær, um leik Grindavíkur og Hauka .