31. fundur fræðslunefndar var haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 15. október 2014 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Þórunn Svava Róbertsdóttir formaður, Klara Halldórsdóttir aðalmaður, Ámundínus Örn Öfjörð aðalmaður, Guðmundur Grétar Karlsson aðalmaður, Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Albína Unndórsdóttir leikskólastjóri, Inga Þórðardóttir skólastjóri og Halldóra Kristín Magnúsdóttir grunnskólastjóri.
Fundargerð ritaði: Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Dagskrá:
1. 1409077 - Starfsáætlun Grunnskóla Grindavíkur 2014 - 2015
Halldóra Kr. Magnúsdóttir, skólastjóri grunnskóla kynnir þá þætti sem vantaði í starfsáætlunar skólans.
2. 1408052 - Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2015-2018
Halldóra Kr. Magnúsdóttir, skólastjóri grunnskóla reifar fjárhagsáætlun skólans og gerir grein fyrir helstu forsendum hennar. Í kjölfarið gerir Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs grein fyrir fjárhagsáætlun þeirra deilda sem undir hann heyra. Þá reifar Inga Þórðardóttir, skólastjóri tónlistarskóla fjárhagsáætlun skólans. Að lokum fer Albína Unndórsdóttir, skólastjóri Leikskólans Lautar yfir fjárhagsáætlun síns skóla.
3. 1409123 - Beiðni um nýtt stöðugildi hjá Tónlistarskóla Grindavíkur
Inga Þórðardóttir, skólastjóri tónlistarskóla gerir nefndinni grein fyrir framtíðarsýn sinni á skólastarfið. Í samræmi við bókun bæjarráðs mun nefndin móta tillögu á grundvelli nýrrar námskrár skólans og framtíðarsýnar fyrir skólaárið 2015 - 2016.
4. 1410035 - Rekstur Leikskólans Lautar
Fræðslunefnd fjallaði um málið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:10