Nú þegar haustið er að færast yfir og veturinn nálgast er Bryggjan kaffihús að fara aftur af stað með lið sem þeir kalla ,,Milliliðalaust". Þessar uppákomur eru Grindvíkingum að góðu kunnar en ýmsir kunnir einstaklingar af ýmsum sviðum þjóðfélagsins hafa heimsótt Bryggjuna og spjallað við gesti á þessum viðburðum. Gesturinn að þessu sinni er Helgi Vilhjálmsson, gjarnan kenndur við Góu.
Hér að neðan er svo fréttatilkynning frá Bryggjunni:
,,Góðir Grindvíkingar.
Milliliðalaust á miðvikudag 15. okt kl. 9 fyrir hádegi
Helgi Vilhjálmsson „Helgi á Mánaborg, Helgi í Góu og KFC".
Helgi hefur vakið athygli í þjóðmálaumræðu í nokkur ár.
Hann hefur barist töluvert fyrir húnæðismálum eldri borgara.
Helgi var kokkur hjá Siggapalla á Hafrenningi GK 39 í upphafi
sjöunda áratugarinns.
Hann keypti Mánaborgina af Lalla á Garði og Jóni í Vorhúsum.
Þarna byrjaði hann í veitingabransanum.
Milliliðalaust miðvikudaginn 15. Október kl 9 fyrir hádegi
Helgi á Mánaborg verður frummælandi
Það eru allir velkomnir meða húsrúm leyfir.
Beztu kveðjur
BRYGGJAN"