Grindvíkingar semja viđ nýjan erlendan leikmann

  • Körfubolti
  • 10. október 2014

Karfan.is greindi frá því í gærkvöldi að karlalið Grindavíkur í Dominosdeild karla hafi samið við nýjan erlendan leikmann, Joey Haywood að nafni. Haywood er 185 cm hár bakvörður og lék síðast í dönsku deildinni með Álaborg. Grindvíkingar hefja leik gegn Haukum á útivelli í kvöld og mun Haywood þreyta frumraun sína með liðinu í þeim leik.

Haywood þessi er fæddur í Vancouver í Kanada árið 1984 en er einnig ættaður frá Trinídad. Hann útskrifaðist úr St. Mary's háskólanum árið 2011 og hefur síðan leikið í Kanada og Danmörku. Með Álaborg var hann stigahæsti leikmaður deildarinnar með 25 stig að meðaltali í leik, valinn í stjörnulið deildarinnar og var annar í kjörinu á leikmanni ársins. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun