Það verða sannkallaðir stórtónleikar á Bryggjunni kaffihúsi annað kvöld þegar fjórmenningarnir í Moses Hightower mæta á svæðið og spila. Muna þeir án vafa taka nokkur lög af plötunni Önnur Mósebók í bland við nýtt efni.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.