Það var ansi þétt menningardagskrá í Grindavík síðastliðinn laugardag. Meðal þess sem boðið var upp á var þriðja sögugönguferð haustsins, en gönguferðirnar eru samvinnuverkefni Minja- og sögufélags Grindavíkur og Grindavíkurbæjar.
Að þessu sinni var gengið á milli listaverka í bænum undir leiðsögn Einars Lárussonar. Heldur dræmri mæting var í þessa göngu en síðustu enda margir uppteknir að stússast í kringum réttirnar, fótboltann og auðvitað fótboltaballið.
Þeir sem sáu sér fært að mæta létu engu að síður vel af göngunni og leiðsögninni og ekki skemmdi veðrið fyrir.