Krafa um gćđastjórnunarkerfi byggingariđnađi tekur gildi 1. janúar 2015

  • Fréttir
  • 19. september 2014

Mannvirkjastofnun vekur athygli á að allir sem skrá sig á byggingarleyfisskyld verk sem hönnuðir, hönnunarstjórar, iðnmeistarar eða byggingarstjórar eftir 1. janúar 2015 skulu vera með gæðastjórnunarkerfi sem samþykkt er af stofnuninni.

Krafa um gæðastjórnunarkerfi byggir á ákvæðum 24. gr., 31. gr. og 32. gr. laga um mannvirki en samkvæmt 7. tölulið ákvæða til bráðabirgða í lögunum er veittur frestur til 1. janúar 2015 til að uppfylla ákvæðin. Nánari upplýsingar má m.a. nálgast á vef Mannvirkjastofnunar undir neðangreindri slóð:
http://www.mannvirkjastofnun.is/byggingar/gaedastjornunarkerfi/

Innleiðing gæðastjórnunarkerfa í byggingariðnaði - Kynningarfundir

Mannvirkjastofnun og Samtök Iðnaðarins standa fyrir kynningarfundum um innleiðingu gæðastjórnunarkerfa í byggingariðnaði í september og október.

Fundir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:

Egilsstaðir 22. september kl. 13:00 Hótel Hérað
Akureyri 23. september kl. 09:00 Hótel KEA
Sauðárkrókur 23. september kl. 14:00 Hótel Mælifell
Ísafjörður 24. september kl. 13:00 Hótel Ísafjörður
Borgarnes 25. september kl. 09:30 Hótel Borgarnes
Stykkishólmur 25. september kl. 15:00 Hótel Stykkishólmur
Reykjanesbær 29. september kl. 15:00 Flughótel
Hella 30. september kl. 15:00 Árhús, gistihús
Reykjavík 9. október kl. 15:00 Grand Hótel - Hvammur

Allir aðilar sem tengjast mannvirkjagerð eru velkomnir

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!