Útsvarið á RÚV hefst annað kvöld og er það lið Grindavíkur sem ríður á vaðið þegar það mætir liði Hafnarfjarðar. Útsvarskempan Agnar Steinarsson hefur lagt keppnisskóna á hilluna eftir fjögur löng og ströng ár en í hans stað kemur inn í liðið önnur spurninakeppniskempa, Sigurður Jónsson, verkstjóri hjá Vísi og fróðleiksbrunnur mikill.
Meðfylgjandi mynd náðist af liðinu á æfingu. Liðið skipa, talið frá vinstri: Siggeir F. Ævarsson, Ragnheiður Eyjólfsdóttir og Sigurður Jónsson.