Aðalfundur Lista Grindvíkinga verður haldinn í Verkalýðshúsinu fimmtudaginn 18. september næstkomandi klukkan 20:00. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf. Léttar veitingar verða í boði. Þeir bæjarbúar sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi G-listans eru hvattir til að mæta.