Vel var mætt í aðra sögugöngu haustsins nú á laugardaginn þegar gengið var um gamla bæinn undir leiðsögn Sigurðar Ágústssonar. Göngurnar eru samvinnuverkefni Grindavíkurbæjar og Minja- og sögufélags Grindavíkur og eru þrjár gönguferðir tilviðbótar framundan næstu laugardaga.
Rúmlega 40 manns mættu í gönguna í þetta skiptið sem verður að teljast nokkuð góð mæting. Eftir fróðlega göngu um gamla bæinn bauð Minja- og sögufélagið uppá kaffi og kleinur á efri hæðinni Kvennó sem vakti mikla lukku og voru margir sem þáðu boðið og fengu sér kaffi og spjölluðu yfir rjúkandi bolla.
Næstkomandi laugardag verður svo gengið um listaverk bæjarsins undir leiðsögn Einars Lárussonar