40 ára afmælisdagskrá Grindavíkurbæjar heldur áfram á morgun þegar önnur laugardagsgangan verður í samvinnu við Sögu- og minjafélag Grindavíkur. Á morgun, laugardaginn 13. september kl. 11:00 verður gönguferð um gamla bæinn (ef veður leyfir) með Sigurði Ágústssyni fyrrverandi aðalvarðstjóra í Grindavík.
Hann fer yfir sögu húsanna en hann hefur séð um að skrá húsin á svæðinu og sögu þeirra svo hægt sé að meta varðveislugildi þeirra. Hefur þetta verið unnið í tengslum við nýtt deiliskipulag fyrir gamla bæinn.
Mæting við Kvennó. Fólki er bent á að klæða sig eftir veðri.