34. fundur Frístunda- og menningarnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 3. september 2014 og hófst hann kl. 20:00.
Fundinn sátu:
Atli Geir Júlíusson aðalmaður, Sigurður Enoksson aðalmaður, Lovísa H Larsen formaður, Nökkvi Harðarson aðalmaður, Þorsteinn Gunnarsson embættismaður og Gunnlaugur Jón Hreinsson áheyrnarfulltrúi UMFG.
Fundargerð ritaði: Þorsteinn Gunnarsson, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Dagskrá:
1. 1008068 - Málefni bókasafns
Margrét R. Gísladóttir forstöðumaður bókasafnsins fór yfir flutningana á bókasafninu í nýtt húsnæði við grunnskólann og starfsemina í haust.
2. 1408130 - Æfingatöflur íþróttamannvirkja 2014 - 2015
Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja lagði fram æfingatöflur fyrir íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar veturinn 2014-2015. Enn vantar æfingatöflur fyrir knattspyrnudeildina í Hópinu.
3. 1409002 - Vaktatöflur í nýju íþróttamannvirki
Hermann fór yfir fyrstu drög að vaktatöflum fyrir starfsfólk íþróttamiðstöðvar en breyting verður á starfseminni með nýrri íþróttamiðstöð.
4. 1402018 - Félag eldri borgara í Grindavík óskar eftir aðstöðu fyrir púttvöll innanhúss
Félagið fær aðstöðu í bláu útistofu grunnskólans til bráðabirgða. Unnið er að stefnumótun í frístundamálum Grindavíkurbæjar.
5. 1302023 - Óskað er eftir aðstöðu fyrir pool-borð
Félagið fær aðstöðu í bláu útistofu grunnskólans til bráðabirgða. Unnið er að stefnumótun í frístundamálum Grindavíkurbæjar.
6. 1403156 - Sögu- og minjafélag Grindavíkur óskar eftir styrk
Félagið fær aðstöðu á efri hæð Kvennó til bráðabirgða. Unnið er að stefnumótun í frístundamálum Grindavíkurbæjar.
7. 1407030 - Umsókn um húsnæði fyrir Pílufélag Grindavík
Félagið fær aðstöðu á neðri hæð Kvennó til bráðabirgða. Unnið er að stefnumótun í frístundamálum Grindavíkurbæjar.
8. 1404004 - Úttekt á frístundastarfi á vegum Grindavíkurbæjar
Verkefnisáætlun stýrihóps lögð fram.
9. 1305036 - Stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík
Stefnumótunarfundur um íþróttamál var haldinn var 8. apríl 2013. Úr þeirri vinnu hefur aðeins verið samþykkt styrkur bæjarins til afreksstarfs UMFG fyrir þetta ár. Hins vegar á eftir að ljúka við stefnumótunina í heild sinni. Nefndin felur sviðsstjóra og formanni nefndarinnar að leggja fram verkefnisáætlun um stefnumótunina fyrir næsta fund nefndarinnar.
10. 1407033 - Umsókn í afrekssjóð - Jens Valgeir Óskarsson
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
11. 1407032 - Umsókn í Afrekssjóð - Jón Axel Guðmundsson
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
12. 1309091 - 40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Drög að afmælisdagskrá afmælisnefndar fyrir haustið lögð fram.
13. 1210023 - Fundargerðir bygginganefndar íþróttamannvirkja.
Fundargerðir 20. og 21. fundar lagðar fram.
14. 1408014 - 100 ára kosningaréttur kvenna
Sviðsstjóra falið að vinna að myndarlegri dagskrá í tengslum við þennan atburði í samstarfi við félagasamtök.
15. 1408052 - Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2015-2018
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs fór yfir tímaramma fjárhagsáætlunar og hvatti nefndarmenn til að huga vel að nýjum og ferskum hugmyndum fyrir komandi ár.
16. 1404003 - Vinnuskóli 2014
Skýrsla um starfsemi Vinnuskólans 2014 lögð fram. Einnig skýrsla Codland um samstarfsverkefni með Vinnuskólanum
17. 1409005 - Rauði krossinn óskar eftir endurnýjun á samningi
Sviðsstjóra falið að gera nýjan samning við Grindavíkurdeild Rauða krossins á sömu forsendum til næstu þriggja ára.
18. 1404002 - 17. júní 2014
Nefndin telur að aukin fjölbreytni í dagskrá hafi gert þjóðhátíðardaginn enn skemmtilegri en áður.
19. 1409003 - Erindi frá Sögu- og minjafélagi Grindavíkur
Nefndin vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
20. 1111014 - Fundargerðir forvarnarteymis Grindavíkur
Fundargerð frá 10. júní lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 22:00.