1358. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 2. september 2014 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson formaður, Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm aðalmaður, Kristín María Birgisdóttir varaformaður, Marta Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. 1309002 - Körfubíll fyrir slökkviðlið Grindavíkur
Málinu frestað.
2. 1405089 - Ný líkamsræktaraðstaða
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Drög að leigusamningi lögð fram, ásamt kostnaðaráætlun við breytingar á húsnæði og áætluðum leigutekjum.
Bæjarstjóra falið að vinna leigusamning áfram og leggja fyrir bæjarráð.
3. 1408112 - Viljayfirlýsing
Sameiginleg viljayfirlýsing Grindavík-Experience, Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar vegna skiltamála lögð fram.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viljayfirlýsingin verði staðfest.
4. 1408052 - Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2015-2018
Samantekt frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um forsendur fjárhagsáætlunar 2015-2018 lögð fram.
5. 1408128 - Fasteignagjöld 2015
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti drög að áætlun fasteignagjalda 2015 miðað við óbreyttar álagningarforsendur.
6. 1409001 - Útsvar 2015
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti drög að áætlun um staðgreiðslu 2015.
7. 1408089 - Innri leiga Eignasjóðs 2014, viðauki við fjárhagsáætlun
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggur fram tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2014 vegna innri leigu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 sem feli í sér hækkun á tekjum Eignasjóðs upp á 20.983.343 kr. og að sama skapi hækki gjöld þeirra stofnanna sem leigja eignirnar samtals um sömu fjárhæð.
8. 1408016 - Fundadagatal Grindavíkurbæjar 2014-2015
Tillaga að fundadagatali lögð fram.
9. 1405109 - HH smíði ehf óskar eftir áframhaldandi leyfi á Oddsbúð við Bakkalág 20.
Framhald frá fundi 1351, þar sem bæjarráð óskaði eftir umsögn skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggst gegn því að veitt verði áframhaldandi leyfi fyrir húsinu við Bakkalág 20.
Hafnarstjórn leggur áherslu á að Oddsbúð getur ekki verið á hafnarsvæðinu til frambúðar, því leggur Hafnarstjórn til að HH smíði verði veitt stöðuleyfi fyrir Oddsbúð til eins árs og nýti tímann til að finna starfsseminni aðra staðsetningu.
Bæjarráð hafnar erindi HH Smíði ehf. um áframhaldandi leyfi fyrir húsinu að Bakkalág 20 en samþykkir að veita HH Smíði ehf. 1 ár til að finna starfseminni aðra staðsetningu.
10. 1408100 - Ósk um styrk Faxi mánaðarblað
Faxi mánaðarblað óskar eftir 60.000 kr styrk til dreifingar á septemberútgáfu blaðsins í Grindavík.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30.