Veist ţú um snyrtilegt fyrirtćki? Ábendingar óskast!

  • Fréttir
  • 29. ágúst 2014

Fyrr í sumar óskaði Grindavíkurbær eftir ábendingum um snyrtilega garða sem og snyrtilegar lóðir og húsnæði hjá fyrirtækjum. Fjölmargar ábendingar bárust um fallega garða en engin ábending barst um fyrirtæki. Hér er því lokaútkall þar sem kallað er eftir ábendingum um snyrtileg fyrirtæki í bænum. Öll fyrirtæki í bænum koma til greina, stór og smá.

Hægt er að koma ábendingum til skila með því að senda upplýsingar á kristjan@grindavik.is eða siggeir@grindavik.is . Einnig er hægt að senda þær símleiðis með því að hringja í síma 420 1100 (afgreiðsla bæjarskrifstofu) og sömuleiðis má setja inn tilnefningar á fésbókarsíðu bæjarins.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir