Skólaárið 2012-2013 kom upp sú hugmynd að gera vinaverkefni með vinabæ okkar Grindvíkinga í Svíþjóð Piteå. Hugmyndin var að fá krakka á í Grunnskóla Grindavíkur til að vinna verkefni út frá sameiginlegri hugmynd. Eftir nokkurn tíma þar sem kastað var hugmyndinni á milli þá þróaðist hún út í það að gera kynningarmyndband fyrir vini okkar Í Piteå og sömuleiðis myndu þeir gera myndband fyrir okkur um Piteå.
Nemendurnir Elvar Geir Sigurðsson, Friðfinn S. Sigurðsson og Haukur Arnórsson sáu um gerð myndbandsins fyrir hönd Grindavíkur. Öll tónlist í myndbandinu er frumsamin og leikin af þeim Friðfinni og Hauki en Elvar sá um myndatöku og klippingu. Yfirumsjón með verkinu hafði Pálmar Örn Guðmundsson.
Myndbandið hefur nú verið birt á Youtube og má einnig sjá það hér að neðan. Glæsilegt framtak hjá þessum ungu piltum.