Námskeiðin byrja í Sundlaug Grindavíkur, þriðjudaginn 19. ágúst og eru til 7. október. Vatnsleikfimi er mjög góð þjálfun fyrir kropp og geð og hentar sérstaklega vel fyrir þá sem eiga erfitt með að stunda hefðbundna likamsrækt t.d vegna þyngdar eða stoðkerfisvanda.
Hver og einn vinnur eftir sinni getu og ástandi hverju sinni, við erum glöð og kát og njótum okkar í frábærum félagsskap hvers annars, maður er manns gaman.
Hentar báðum kynjum og við viljum gjarnan fá fleiri karlmenn til að prófa og vera með!
Það eru allir hjartanlega velkomnir, líka þú.
**Eldri borgarar (60+) eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl: 16:00-16:50
Gjaldfrálst. (12-15 skipti)
**Almenningur er á þriðjudögum og fimmtudögum kl: 17-17:50
Námskeið: 15 skipti. Verð 15.000.-kr (10% afsláttur fyrir bótaþega)
Frír prufutími í boði
Leiðbeinandi er Arna Þ. Björnsdóttir, ÍAK þjálfari og jógakennari.
Elísa Berglind kemur sem gestakennari í 1-2 skipti og kennir okkur Auqa Zumba
Skráning og upplýsingar í síma 8635254 og á ellis@simnet.is.