Grindavíkurbær óskar eftir tilboðum í gerð „göngu- og hjólastígs frá Bláa lóni að Gíghæð í Grindavík".
Stígurinn er um 2.400 m langur og helstu magntölur eru fyllingar undir stíg um 2.200 m3, uppúrtekt um 1.200 m3 og 7 þveranir yfir lagnir. Verkkaupi leggur til fyllingarefni í verkið en sækja þarf efnið og mala í rétta kornastærð.
Framkvæmdum skal vera lokið fyrir 20. ágúst 2014.
Útboðgögn verða seld á kr. 2.000.- frá og með mánudeginum 7. júlí 2014 á skrifstofu Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62 og tækniþjónustu S.Á. Hafnargötu 60, 230 Reykjanesbæ á skrifstofutíma.
Tilboðum skal skila inn á skrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, í lokuðu umslagi merktu viðkomandi verki fyrir kl: 11:00 mánudaginn 14. júlí 2014, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra er þess óska. Fyrirspurnir skulu berast á armann@grindavik.is eða skriflega á Grindavíkurbær, Víkurbraut 62, 240 Grindavík merkt „fyrirspurn til skipulagsfulltrúa".
Upplýsingar verða ekki veittar í síma.