Vinnuskólinn heldur áfram þótt svo hin gula skíni ekki mikið síðastliðnu daga. Þriðjudaginn 24. júní voru veðurguðirnir eitthvað að stríða okkur en við gerðum bara gott úr því og kíktum inn í Hópið og fórum í leiki og skemmtu allir sér nokkuð vel. Annars hefur Vinnuskólinn haldið áfram sínu eðlilega formi og eru hópar í óða önn að reita arfa, slá gras og þess háttar. Það þarf að gera okkar fallega bæjarfélag enn fallegra og tel ég persónulega að okkur gangi mjög vel.
Á meðfylgjandi mynd má sjá að Sigmar Árnason, byggingafulltrúi Grindavíkur merkti einn bíl vinnuskólans í höfuðið á Leó Aðalsteini Grönvold Einarssyni. Hann Leó hefur hjálpað okkur flokkstjórum Vinnuskólans alveg gríðarlega mikið og þá sérstaklega Ólafi Ólafssyni sem er bílstjóri skólans. Virkilega gott að hafa einn mann eins og Leó til að hjálpa okkur og á hann líka auðvelt með að gleðja hvern einasta mann og metum við það mikils.
Sólveig Guðmundsdóttir, leikkona og leiklistarkennari kom í heimsókn til okkar og tók hvern einasta hóp skólans á leiklistarnámskeið. Var þetta gert til að auka hópeflið í hverjum hópi, stíga aðeins út fyrir þægindarhringinn og aðalatriðið auðvitað að hafa gaman.
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson, fréttaritari Vinnuskólans