null
443. fundur Bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 19. júní 2014 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Kristín María Birgisdóttir forseti, Hjálmar Hallgrímsson 1. varaforseti, Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm 2. varaforseti, Guðmundur L. Pálsson Bæjarfulltrúi, Marta Sigurðardóttir Bæjarfulltrúi, Jóna Rut Jónsdóttir Bæjarfulltrúi, Ásrún Helga Kristinsdóttir Bæjarfulltrúi og Róbert Ragnarsson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Guðmundur Pálsson D lista hefur lengstan starfsaldur kjörinna bæjarfulltrúa og stýrir hann fundi fram að kjöri forseta bæjarstjórnar.
Dagskrá:
1. 1406018 - Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga 31. maí 2014
Til máls tók: Guðmundur
Fundargerð kjörstjórnar vegna sveitarstjórnarkosninga þann 31. maí síðastliðinn lögð fram. Á kjörskrá voru 1.991 einstaklingur, atkvæði greiddu 1.465, auðir seðlar voru 39, ógildir seðlar voru 13, kjörsókn var 73,6%.
Niðurstöður kosninganna voru eftirfarandi:
D-listi 605 atkvæði
B-listi 332 atkvæði
G-listi 246 atkvæði
S-listi 230 atkvæði
Kjörbréf hafa verið gefin út til kjörinna bæjarfulltrúa og varabæjarfulltrúa.
Guðmundur óskar nýkjörnum bæjarfulltrúum til hamingju með kjörið og óskar eftir góðu samstarfi á kjörtímabilinu.
2. 1406019 - Kjör forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta
Til máls tóku: Guðmundur, Kristín María
Guðmundur leggur til að Kristín María Birgisdóttir verði kjörin forseti bæjarstjórnar næsta árið.
Samþykkt samhljóða.
Nýkjörinn forseti tekur við stjórn fundarins.
Forseti leggur til að eftirfarandi verði kjörnir 1. og 2. varaforseti bæjarstjórnar.
1. varaforseti. Hjálmar Hallgrímsson.
2. varaforseti. Bryndís Gunnlaugsdóttir.
Samþykkt samhljóða.
3. 1406022 - Málefnasamningur
Til máls tóku: Kristín María, Bryndís og Guðmundur.
Klukkan 17.15 var tekið fundarhlé að beiðni fulltrúa B- og S-lista, og fundur hófst að nýju kl. 17.25
Málefnasamningur D- og G- lista lagður fram.
Samstarfssamningur D og G lista í bæjarstjórn Grindavíkur
Bæjarfulltrúar D og G lista ætla að starfa saman þvert á alla flokka í vinnu sinni fyrir Grindavíkurbæ. Áhersla verður á að allir í bæjarstjórn séu vel upplýstir um þau mál sem koma til afgreiðslu og að sjónarmið allra komi að borðinu áður en ákvörðun er tekin.
Stefnt verður af því að endurráða Róbert Ragnarsson sem bæjarstjóra Grindavíkur.
Forseti bæjarstórnar verður af G lista fyrsta og þriðja ár kjörtímabilsins.
Forseti bæjarstórnar verður af D lista annað og fjórða ár kjörtímabilsins.
Formaður bæjarráðs verður af D lista fyrsta og þriðja ár kjörtímabilsins.
Formaður bæjarráðs verður af G lista annað og fjórða ár kjörtímabilsins.
Fulltrúi D listans verði aðalmaður í stjórn S.S.S.
Fulltrúi G listans verður aðalmaður í stjórn H.E.S.
Fulltrúi D listans verður aðalmaður í stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.
Fulltrúi G listans verður aðalmaður í stjórn Menningarráði Suðurnesja.
Fjármál og stjórnsýsla
Bæjarfulltrúar D og G lista eru sammála um að:
Viðhafa ábyrga stjórnun fjármuna
Viðhalda jöfnuði í rekstri bæjarsjóðs
Stofnuð verði umhverfis- og ferðamálanefnd
Skipulagsmál
Bæjarfulltrúar D og G lista eru sammála um að:
Tryggja nægt framboð lóða fyrir íbúðir og atvinnustarfssemi
Halda áfram að byggja upp göngu- og hjólreiðarstíga í nágrenni Grindavíkur
Hafnarmál
Bæjarfulltrúar D og G lista eru sammála um að:
Þrýsta á ríkið um að koma að endurnýjun stálþils við Miðgarð
Áframhaldandi uppbygging og markaðssetning hafnarsvæðisins
Málefni eldri borgara
Bæjarfulltrúar D og G lista eru sammála um að:
Deiliskipuleggja svæðið við Víðihlíð með tilliti til fjölbreytts búsetuúrræðis
Byggja fleiri íbúðir við Víðihlíð
Tryggja áframhaldandi góða þjónustu við eldri borgara
Frístunda- og menningarmál
Bæjarfulltrúar D og G lista eru sammála um að:
Horft verði til framtíðar og byggður verður nýr íþróttasalur við núverandi íþróttasvæði
Efla starfssemi Þrumunnar
Að koma til móts við þau börn sem ekki kjósa tómstundir sem eru í boði á vegum UMFG
Efla starfssemi og möguleika Kvikunnar sem móttökustað ferðamanna og gera Kvikuna að "lifandi" húsi
Fylgja eftir áætlunum um uppbyggingu við Hópið
Fræðslu- og skólamál
Bæjarfulltrúar D og G lista eru sammála um að:
Fylgja eftir skólastefnu Grindavíkur
Skilgreina og kynna hlutverk skólaskrifstofu
Málefni fatlaðra
Bæjarfulltrúar D og G lista eru sammála um að:
Bæta til muna félags- og tómstundarstarf fatlaðra
Skapa fleiri tækifæri í atvinnumálum fatlaðra í samstarfi við fyrirtæki í bæjarfélaginu
Skoða möguleika á því að innleiða NPA
Formennska í nefndum verður eftirfarandi:
D - listi
Skipulags- og umhverfisnefnd
Fræðslunefnd
Hafnarstjórn
G- listi
Félagsmálanefnd
Frístunda-og menningarnefnd
Umhverfis- og ferðamálanefnd þegar hún tekur til starfa.
Fulltrúar D- og G-lista.
4. 1406020 - Kosning í bæjarráð, sbr. 57. gr. A, 1. töluliður, samþykktar um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur og Bryndís.
Forseti leggur til að eftirfarandi verði kjörnir í bæjarráð næsta árið.
Hjálmar Hallgrímsson D-lista
Kristín María Birgisdóttir G-lista
Bryndís Gunnlaugsdóttir B-lista
Áheyrnarfulltrúi S-lista með málfrelsi og tillögurrétt verði Marta Sigurðardóttir og fær hún greitt fyrir sem almennur bæjarráðsmaður.
Varamenn taka sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn og áheyrnarfulltrúar forfallast.
Samþykkt samhljóða.
5. 1406036 - Kjör kjörstjórnar samkvæmt 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998
Til máls tók: Kristín María
Forseti leggur til að eftirfarandi verði kjörnir í kjörstjórn Grindavíkurbæjar.
Kjartan Adolfsson, formaður
Jónína Ívarsdóttir
Arna Björg Rúnarsdóttir
Varamenn
Baldur Pálsson
Dagný Erla Vilbergsdóttir
Herdís Gunnlaugsdóttir
Samþykkt samhljóða.
6. 1406021 - Kosning í nefndir til fjögurra ára samkvæmt b-lið 57. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Til máls tóku: Kristín María, Marta, bæjarstjóri, Bryndís.
Lagt er til að tilnefningu í stjórn Kvikunnar og Reykjanesfólkvang verði frestað til bæjarráðsfundar sem fer fram þann 24. júní næstkomandi.
Samþykkt samhljóða.
Forseti ber upp tillögu um eftirfarandi skipan í nefndir til fjögurra ára.
Félagsmálanefnd
D-listi. Birgitta Káradóttir
S-listi. Valgerður Jennýjardóttir
G-listi. Anna Sigríður Jónsdóttir. Formaður.
G-listi. Pétur Rúðrik Guðmundsson
B-listi. Ásrún Helga Kristinsdóttir
Varamenn
D-listi. Hulda Kristín Smáradóttir
S-listi. Sigurður Enoksson
G-listi. María Jóhannesdóttir
G-listi. Dagbjartur Willardsson
B-listi. Sæbjörg Erlingsdóttir
Fræðslunefnd
D-listi. Þórunn Svava Róbertsdóttir. Formaður.
D-listi. Klara Sigrún Halldórsdóttir
S-listi. Ámundínus Örn Öfjörð
G-listi. Ómar Örn Sævarsson
B-listi. Guðmundur Grétar Karlsson
Varamenn
D-listi. Sigurpáll Jóhannsson
D-listi. Jóhanna Sævarsdóttir
S-listi. Magnús Andri Hjaltason
G-listi. Ragnheiður Þóra Ólafsdóttir
B-listi. Eva Björk Sigurðardóttir
Skipulags- og umhverfisnefnd
D-listi. Sigurður Guðjón Gíslason. Formaður.
D-listi. Jón Emil Halldórsson
G-listi. Þórir Sigfússon
S-listi. Marta Sigurðardóttir
B-listi. Erla Ósk Pétursdóttir
Varamenn:
D-listi. Ólafur Már Guðmundsson
D-listi. Örn Sigurðsson
S-listi. Páll Þorbjörnsson
G-listi. Pétur Benediktsson
B-listi. Bryndís Gunnlaugsdóttir
Frístunda- og menningarnefnd
D-listi. Atli Geir Júlíusson
S-listi. Sigurður Enoksson
G-listi. Lovísa H. Larsen. Formaður.
G-listi. Nökkvi Harðarson
B-listi. Ágústa Inga Sigurgeirsdóttir
Varamenn:
D-listi. Sigríður Berta Grétarsdóttir
G-listi. Aníta Björk Sveinsdóttir
G-listi. Helgi Þór Guðmundsson
S-listi. Sigríður Jónsdóttir
B-listi. Björgvin Björgvinsson
Hafnarstjórn
D-listi. Ómar Davíð Ólafsson. Formaður.
D-listi. Alda Agnes Gylfadóttir
S-listi. Viktor Scheving Ingvarsson
G-listi. Pétur Benediktsson
B-listi. Páll Jóhann Pálsson
Varamenn
D-listi. Gunnar Harðarson
D-listi. Eiríkur Óli Dagbjartsson
S-listi. Páll Þorbjörnsson
G-listi. Kristín María Birgisdóttir
B-listi. Andrés Óskarsson
Tillögurnar eru samþykktar samhljóða.
Forseti leggur til að eftirfarandi verði kjörnir í stjórnir og ráð á vegum Grindavíkurbæjar.
Menningarráð Suðurnesja
Kristín María Birgisdóttir
Varamaður:
Lovísa H. Larsen
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja
Lovísa H. Larsen
Varamaður:
Kristín María Birgisdóttir
Samsstarfsnefnd um Svæðiskipulag Suðurnesja
Jón Emil Halldórsson
Marta Sigurðardóttir
Til vara:
Guðmundur Pálsson
Erla Ósk Pétursdóttir
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Guðmundur Pálsson
Til vara.
Hjálmar Hallgrímsson.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja. Kalka.
Jóna Rut Jónsdóttir
Til vara
Þórunn Svava Róbertsdóttir
Stjórn Atvinnuþróunarfélagsins Heklunnar
Róbert Ragnarsson
Til vara:
Jón Þórisson
Reykjanes Jarðvangur
Róbert Ragnarsson
Til vara:
Jón Þórisson
Fulltrúar á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fulltrúi meirihluta fylgir embætti forseta bæjarstjórnar.
Fyrsta og þriðja ár. Kristín María Birgisdóttir. Annað og fjórða ár. Hjálmar Hallgrímsson
Bryndís Gunnlaugsdóttir
Til vara:
Fyrsta og þriðja ár. Hjálmar Hallgrímsson. Annað og fjórða ár. Kristín María Birgisdóttir.
Marta Sigurðardóttir
Tillögurnar eru samþykktar samhljóða.
7. 1406023 - Laun bæjarfulltrúa og nefndarlaun
Til máls tók: Kristín María
Forseti leggur til að laun bæjarfulltrúa og nefndarlaun á kjörtímabilinu verði óbreytt frá því fyrirkomulagi sem ákveðið var í upphafi síðasta kjörtímabils, þann 16. júní 2010.
Samþykkt samhljóða.
8. 1406024 - Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar
Til máls tóku: Kristín María, Marta, bæjarstjóri, Guðmundur og Bryndís.
Forseti leggur til að Róbert Ragnarsson verði endurráðinn bæjarstjóri Grindavíkurbæjar á kjörtímabilinu. Ráðningarsamningur við bæjarstjóra er lagður fram til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða.
9. 1405098 - Umsókn um byggingarleyfi Hópsheiði 2
Til máls tók: Kristín María,
Stjörnufiskur ehf. óskar eftir byggingarleyfi til að fjarlægja allar byggingar af lóð við Hópsheiði 2 lnr. 208181. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um að öll mannvirki verði fjarlægð, jarðrask afmáð og mengaður jarðvegur fjarlægður.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu nefndarinnar samhljóða.
10. 1405122 - Umsókn um byggingarleyfi. Áfangi nr. 2 CRI við Orkubraut 2.
Til máls tók: Kristín María
CRI ehf. óskar eftir byggingaleyfi fyrir öðrum áfanga við Orkubraut 2. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að erindið verði samþykkt. Byggingarleyfið verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu nefndarinnar samhljóða.
11. 1405126 - Umsókn um byggingarleyfi. Miðgarður 3
Til máls tók: Kristín María
Seljabót 2 ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir breytingum á húsnæði við Miðgarð 3 lnr.128905. Breytingin felur í sér nýja glugga, lenging viðbyggingu og nýja botnplötu. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að erindið verði samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu nefndarinnar samhljóða.
12. 1403044 - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara, Brú Emerald slhf.
Til máls tóku: Allir tóku til máls.
Skipulags- og umhverfisnefnd hefur fjallað um minnisblað frá Eflu verkfræðistofu um mat á eignarhaldi Grindavíkur á ljósleiðaralögn frá Mölvík til Grindavíkur. Skipulags- og umhvefisnefnd vísar málinu til umfjöllunar bæjarstjórnar.
Forseti leggur til minnisblaðinu verði vísað til frekari umfjöllunar í bæjarráði.
Samþykkt samhljóða.
Brú Emerald ehf. óskar jafnframt eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara í landi Grindavíkur. Erindinu fylgir lýsing og yfirlitsmyndir unnar af verkfræðistofunni Mannvit. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að framkvæmdaleyfi verði samþykkt með fyrirvara um að legu strengsins verði breytt vestan Húsafells þannig að stysta leið verði valin frá vegslóða að gamla Nato strengnum. Framkvæmdaleyfi verður gefið út þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilið inn.
Samþykkt samhljóða.
13. 1406039 - Útsending bæjarstjórnarfunda
Til máls tóku: Kristín María, Marta, Guðmundur, Bryndís og Hjálmar.
Fulltrúar B- og S-lista leggja til að sýnt verði beint frá bæjarstjórnarfundum í gegnum internetið frá og með 1. janúar 2015. Áætlaður upphafskostnaður er um 500.000 kr. og skal gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun ársins 2015. Með því að gera bæjarstjórnarfundi aðgengilega á netinu er verið að auka upplýsingaflæði til íbúa og gagnsæi í stjórnsýslu Grindavíkur.
Forseti leggur til að tillögunni verði vísað til frekari vinnslu í bæjarráði áður en ákvörðun verður tekin, bæjarstjóra er falið að afla frekari upplýsinga um kostnað við útsendingu bæjarstjórnarfunda og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða.
14. 1406025 - Heimild til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi bæjarstjórnar
Til máls tóku: Kristín María, Bryndís og Guðmundur
Með vísan til 7. gr. samþykkta um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar leggur forseti til að fundir bæjarstjórnar verði felldir niður í júní og júlí í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Jafnframt að bæjarráði verði falin fullnaðarafgreiðsla mála, nema þar sem lög kveða á um annað í samræmi við 3. mgr. 48. gr. sömu samþykkta.
Samþykkt samhljóða.
15. 1303028 - Deiliskipulag miðbæjar - Ránargata og Hafnargata
Til máls tóku: Kristín María, Marta og Bryndís.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að auglýst verði skipulagslýsing skv. 3.mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og matslýsingin verður jafnframt send Skipulagsstofnun til umsagnar og óskað umsagna frá Umhverfisstofnun, Samgöngustofu, Vegagerðinni og Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu nefndarinnar samhljóða.
16. 1405136 - 242.fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja
Til máls tók: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram.
17. 1405144 - 676.fundur S.S.S. Fundarboð og fundargerð
Til máls tóku: Kristín María og Bryndís.
Fundargerðin er lögð fram.
18. 1405100 - 90.fundur Þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum
Til máls tók: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram.
19. 1405141 - Fundargerð 12. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Til máls tóku: Kristín María og Róbert
Fundargerðin er lögð fram.
20. 1405114 - Fundargerð 16. fundar stjórnar Sambands orkusveitarfélaga
Til máls tóku: Kristín María og Bryndís
Fundargerðin er lögð fram.
21. 1405140 - Fundargerð 448. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Til máls tóku: Kristín María og Bryndís.
Fundargerðin er lögð fram.
22. 1406003F - Fræðslunefnd - 28
Til máls tóku: Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
23. 1405012F - Bæjarráð Grindavíkur - 1351
Til máls tóku: Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
24. 1405015F - Bæjarráð Grindavíkur - 1352
Til máls tók: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram.
25. 1406005F - Bæjarráð Grindavíkur - 1353
Til máls tóku: Kristín María, Bryndís og Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram.
26. 1405006F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 41
Til máls tóku: Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
27. 1406001F - Frístunda- og menningarnefnd - 33
Til máls tóku: Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20.