Botninn var sleginn í Sjóarann síkáta á sjómannadeginum sjálfum síðastliðinn sunnudag. Mikill fjöldi fólks hafði safnast saman á bryggjukantinum til að fylgjast með flekahlaupum og koddaslagnum, en þeir viðburðir hafa fyrir löngu fest sig í sessi á sjómannadeginum. Sjórinn var sennilega í kaldara lagi þetta árið en Björgunarsveitin Þorbjörn sá til þess að enginn þurfti að busla í sjónum of lengi.
Fyrr um daginn stóð Vélstjóra- og sjómannafélagið fyrir sinni hátíðardagskrá, fyrst með sjómannamessu í kirkjunni og svo niðri við höfnina þar sem ávörp voru flutt og gamlir félagar heiðraðir .
Dagskráin á hátíðarsviðinu, þar sem atriði fyrir fjölskyldufólk voru í fyrirrúmi, hélt svo áfram frá 15:30. Íþróttaálfurin og Solla stirða fengu alla til að hoppa og skoppa og tryggðu að engum yrði kalt. Einar Mikael töframaður steig aftur á svið og Skoppa og Skrítla komu svo og skemmtu yngsta aldurshópnum.
Glæsileg hátíð er nú að baki og er mál manna að hún hafi gengið vonum framar miðað við veður. Spekingarnir segja að rigningarsumrin komi í pörum og því getur ekki annað verið en það verði glampandi sól á næsta ári!