Nokkrar myndir frá föstudeginum á Sjóaranum síkáta

  • Fréttir
  • 3. júní 2014

Sjóarinn síkáti 2014 fór af stað af fullum krafti síðastliðið föstudagskvöld. Okkar margrómaða bryggjuball og litaskrúðganga hverfanna voru þó í ákveðnu uppnámi fram að síðustu stundu þar sem veðurspáin var vægast sagt ekki góð. Eftir samráðsfundi og mikla íhugun var ákveðið að færa hátíðarhöldin inn í íþrótthús og verður að segjast alveg eins og er að það var góð ákvörðun og tókust hátíðarhöldin afar vel í annars snældu tjúlluðu veðri.

Margir Grindvíkingar mættu í sína fínasta litadýrðarpússi og myndaðist góð stemming í þétt setnu íþróttahúsinu þar sem dansinn dunaði langt fram á nótt. Hér eru nokkrar myndir frá kvöldinu en fleiri myndir má sjá á Facebook síðu bæjarins .


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir