441. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 29. apríl 2014 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm forseti, Marta Sigurðardóttir aðalmaður, Páll Jóhann Pálsson aðalmaður, Dagbjartur Willardsson aðalmaður, Páll Gíslason varamaður, Vilhjálmur Árnason varamaður, Lovísa H Larsen varamaður, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. 1311065 - Ársuppgjör 2013, Grindavíkurbær og stofnanir
Endurskoðendur bæjarins, Lilja Karlsdóttir og Auðunn Guðjónsson, mættu á fundinn og fóru yfir endurskoðunarskýrslu vegna endurskoðunar ársins 2013 og svöruðu fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Allir
Rekstrarniðurstaða A-hluta var afgangur að fjárhæð 139,5 milljónir króna. Áætlun gerði ráð fyrir 114,5 milljónum króna í rekstrarafgang. Rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum A og B hluta, var 180,3 milljónir króna í afgang en áætlun gerði ráð fyrir 156,2 milljónum króna í rekstrarafgang. Munar þar mestu um að rekstrartekjur eru 210,0 milljónum króna yfir áætlun.
Helstu frávik í rekstri samantekinna reikningsskila A og B hluta eru:
- Útsvar og fasteignaskattur voru 88,0 milljónum króna hærri en áætlun gerði ráð fyrir.
- Framlög Jöfnunarsjóðs voru 46,4 milljón króna hærri en áætlun.
- Aðrar tekjur voru 75,6 milljónum króna hærri en áætlun.
- Laun- og launatengd gjöld voru 82,4 milljónum króna hærri en áætlun.
- Annar rekstrarkostnaður var 82,0 milljónum króna hærri en áætlun gerði ráð fyrir.
- Afskriftir voru 9,4 milljónum króna lægri en áætlun.
- Fjármagnsliðir voru 30,9 milljónum króna óhagstæðari en áætlun gerði ráð fyrir.
Heildareignir í samanteknum reikningsskilum A og B hluta eru 7.821,5 milljónir króna. Heildarskuldir og skuldbindingar eru 1.437,1 milljón króna. Lífeyrisskuldbinding er um 461,1 milljón króna og þar af er áætluð næsta árs greiðsla 19,9 milljónir króna. Langtímaskuldir eru 784,4 milljónir króna og þar af eru næsta árs afborganir 43,3 milljónir króna. Eigið fé í samanteknum reikningsskilum er 6.384,4 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall 81,63%.
Skuldahlutfall A- og B-hluta skv. 2. tl. 64. gr. sveitarstjórnarlaga nemur 63% af reglulegum tekjum. Þar af eru 22,9% vegna skuldar sem til er komin vegna kaupa á Orkubraut 3 af HS Orku hf. en sú skuld er greidd með auðlindagjaldi og lóðarleigu frá HS Orku hf.
Skuldaviðmið skv. 14. gr. reglugerðar nr. 502 frá 2012 er negatíft þar sem hreint veltufé er hærra en heildarskuldir að teknu tilliti til frádráttar vegna lífeyrisskuldbindingar.
Rekstur í samanteknum reikningsskilum A og B hluta skilaði 435,4 milljónum króna í veltufé frá rekstri sem er 19,2% af heildartekjum en áætlun gerði ráð fyrir veltufé frá rekstri að fjárhæð 372,2 milljónir króna.
Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum í samanteknum reikningsskilum A og B hluta nam á árinu 2013, 275,3 milljónum króna en áætlun gerði ráð fyrir 689,2 milljónum króna. Helsta skýring á þessu fráviki er að framkvæmdir við ný íþróttamannvirki og við nýjan tónlistarskóla og nýtt bókasafn töfðust meira en áætlun gerði ráð fyrir.
Á árinu voru engin ný lán tekin en afborganir langtímalána voru 56,0 milljónir króna.
Handbært fé hækkaði um 89,0 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir lækkun að fjárhæð 345,9 milljónir króna. Handbært fé í árslok 2013 var 1.587,0 milljónir króna.
Samþykkt samhljóða að vísa ársreikningi Grindavíkurbæjar og stofnana hans fyrir árið 2013 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
2. 1404029 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs gerði grein fyrir málinu.
Aðrir sem til máls tóku: Bryndís, bæjarstjóri, Páll Jóhann, Páll Gísla, Marta og Vilhjálmur
Bókun
Samband sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) óskar eftir umsögn um tillögu að Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040.
Meðal tillagna er að skilgreina vatnsverndarsvæði innan skipulagsmarka Grindavíkurbæjar fyrir mögulegt framtíðarvatnsból fyrir Hafnarfjarðarbæ í Fagradal í landi Krýsuvíkur.
Verði tillagan samþykkt þarf að gera breytingu á Svæðisskipulagi Suðurnesja, Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar og í kjölfarið vinna deiliskipulagstillögu áður en vatnstaka getur hafist.
Bæjarstjórn tekur undir með skipulags- og umhverfisnefnd og áréttar óánægju með að ekki hafi verið svarað erindi Grindavíkurbæjar um að fá aðkomu að gerð svæðisskipulagsins þar sem ljóst var frá árinu 2012 að Hafnarfjarðarbær vildi skilgreina vatnstökusvæði og tilheyrandi vatnsverndarsvæði inn í landi Grindavíkur. Bæjarstjórn mótmælir því að í tillögunni sé skilgreint vatnsverndarsvæði innan skipulagsmarka Grindavíkurbæjar án viðeigandi samráðs.
Bæjarstjórn ítrekar beiðni sína um aðkomu að svæðisskipulagsvinnunni og áskilur sér rétt til að sækja allan kostnað vegna vinnslu beiðnarinnar á SSH og eftir atvikum Hafnarfjarðarbæ. Bæjarstjórn beinir því jafnframt til Hafnarfjarðarbæjar að leita sem fyrst heimildar landeiganda í Fagradal fyrir mögulegri vatnstöku, þ.e. Héraðsnefnd Suðurnesja.
3. 1311039 - Breyting á deiliskipulagi í Mölvík skipulagsnúmer 11458, sameining og stækkun lóða undir gróðurhús.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs gerði grein fyrir málinu.
Aðrir sem til máls tóku: Bryndís
Bókun
Bæjarstjórn samþykkti þann 28. janúar 2014 breytingu á deiliskipulagi við Mölvík.
Breytingin var auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 2. desember 2013 til og með 16. janúar 2014 og í kjölfarið send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga.
Breyting á deiliskipulagi var tekin fyrir ásamt athugasemdum Skipulagsstofnunar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða breytingar á deiliskipulagsbreytingunni í samræmi við athugasemdir Skipulagsstofnunar og felur umhverfis- og skipulagsstjóra að auglýsa breytinguna í B- deild stjórnartíðinda.
4. 1403139 - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir bundnu slitlagi á Krísuvíkurvegi.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs gerði grein fyrir málinu.
Aðrir sem til máls tóku: Bryndís og Páll Jóhann.
Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir framhaldi á þeim endurbótum á Krýsuvíkurvegi milli Vatnsskarðs og Seltúns sem hafnar voru 2011. Gert er ráð fyrir að leggja á þessu ári bundið slitlag á tvo kafla með sama hætti og áður. Verkið fellur að gildandi skipulagsáætlunum og er ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. Framkvæmdasvæðið er innan Reykjanesfólkvangs og hefur því verið haft samráð við Umhverfisstofnun um tilhögun verksins.
Malarefni verður sótt í námur sem eru í rekstri.
Með vísan til ofangreinds og umsagnar Umhverfisstofnunar dagsetta 8. janúar s.l. óskar Vegagerðin eftir framkvæmdaleyfi Grindavíkurbæjar fyrir þessu verki.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða veitingu framkvæmdaleyfis með fyrirvara um leyfi landeiganda.
5. 1404028 - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir borun förgunarholu í Svartsengi.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs gerði grein fyrir málinu.
Aðrir sem til máls tóku: Bryndís, Páll Jóhann, Páll Gísla, Vilhjálmur og bæjarstjóri
Erindinu fylgir yfirlitsmynd. Um er að ræða fjórðu holuna á núverandi borstæði.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða veitingu framkvæmdaleyfisins.
6. 1312034 - Reglur um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis hjá Grindavíkurbæ
Framhald frá fundi 439.
Til máls tóku: Bryndís og Marta
Tillaga að Reglum Grindavíkurbæjar um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis teknar fyrir að nýju með breytingartillögu félagsmálanefndar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna.
7. 1305036 - Stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík
Til máls tók: Bryndís
Tillaga að samningi milli Grindavíkurbæjar og UMFG um stuðning við afreksstarf lagður fram. Frístunda- og menningarnefnd leggur til að samningurinn verði samþykktur.
Bæjarráð hefur vísað samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir samninginn samhljóða og felur bæjarstjóra að undirrita.
8. 1112055 - Hlutabréf Grindavíkurbæjar í HS veitum
Til máls tók: Bryndís
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun 2014 vegna sölu á hlutabréfum í HS veitum hf.
Hækkun rekstrarútgjalda að fjárhæð 6.432.000 kr. vegna fjármagnstekjuskatts. Útgjöldin eru fjármögnuð með hækkun á skuldaliðnum Ógreiddum fjármagnstekjuskatti. Sú skuld verður síðan greidd í nóvember og desember 2015.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna.
9. 1404025 - Boltagámur við knattspyrnuvöll
Til máls tóku: Bryndís og Vilhjálmur
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 225.000 kr. til að leigja gám í stað boltaskúrs við knattspyrnuvöllinn sem eyðilagðist í bruna í vetur.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og fjárhæðin komi til lækkunar á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna.
10. 1404043 - Ósk um styrk til kaupa á almannavarnabúnaði
Til máls tók: Bryndís
Björgunarsveitin Þorbjörn óskar eftir styrk til kaupa á viðbragðstjaldi til að nota við hópslysa- og almannavarnaratvik.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt og jafnframt að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 1.767.000 kr.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.
11. 1403109 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2014, beiðni frá slökkviliðsstjóra
Til máls tók: Bryndís
Slökkvistjóri óskar eftir viðauka við fjárhagáætlun ársins 2014. Viðaukinn snýr að því að fella út lið af eignfærðri fjárfestingu að fjárhæð 1.300.000 kr. og hækka rekstrarlykilinn 07211-2853 Ýmis búnaður um 520.000 kr. Mismunur kr. 780.000 kr. kemur til hækkunar á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögur bæjarráðs.
12. 1404026 - 34.fundur Heklunnar,atvinnuþróunarfélags Suðurnesja
Til máls tóku: Bryndís, bæjarstjóri og Marta
Fundargerðin er lögð fram.
13. 1403117 - 672.fundur haldin í stjórn S.S.S. Fundarboð og fundargerð
Til máls tóku: Bryndís, Marta, bæjarstjóri og Vilhjálmur
Fundargerðin er lögð fram.
14. 1403118 - 673.fundur haldinn í stjórn S.S.S. Fundarboð
Til máls tóku: Bryndís, Marta, bæjarstjóri og Lovísa
Fundargerðin er lögð fram.
15. 1404033 - 674.fundur haldinn í stjórn S.S.S. Fundarboð og fundargerð
Til máls tóku: Bryndís, Dagbjartur og Vilhjálmur
Fundargerðin er lögð fram.
16. 1404013 - Fundargerð 10. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs
Til máls tóku: Bryndís, bæjarstjóri, Dagbjartur, Vilhjálmur og Páll Jóhann
Fundargerðin er lögð fram.
17. 1404017 - Fundargerðir 10.-15. funda stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Til máls tók: Bryndís
Fundargerðin er lögð fram.
18. 1404015 - Fundargerðir 8.-11. funda stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Til máls tóku: Bryndís og bæjarstjóri
Fundargerðin er lögð fram.
19. 1404055 - Fundargerð 447. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Til máls tóku: Bryndís, Dagbjartur, Marta, bæjarstjóri, Páll Jóhann og Páll Gísla
Fundargerðin er lögð fram.
20. 1404010F - Bæjarráð Grindavíkur - 1349
Til máls tók: Bryndís
Fundargerðin er lögð fram.
21. 1404004F - Bæjarráð Grindavíkur - 1348
Til máls tóku: Bryndís, bæjarstjóri og Vilhjálmur
Fundargerðin er lögð fram.
22. 1403017F - Bæjarráð Grindavíkur - 1347
Til máls tóku: Bryndís, Dagbjartur og bæjarstjóri
Fundargerðin er lögð fram.
23. 1404011F - Fræðslunefnd - 27
Til máls tók: Bryndís
Frestað
24. 1404008F - Félagsmálanefnd - 36
Til máls tók: Bryndís
Frestað
25. 1403015F - Félagsmálanefnd - 35
Til máls tók: Bryndís
Frestað
26. 1403016F - Frístunda- og menningarnefnd - 31
Til máls tók: Bryndís
Fundargerðin er lögð fram.
27. 1403005F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 39
Til máls tóku: Bryndís, Marta, Vilhjálmur, bæjarstjóri, Páll Gísla, Dagbjartur og Páll Jóhann
Fundargerðin er lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00.