Laugardaginn 26. apríl verður íbúaþing hjá Framsóknarfélagi Grindavíkur í Framsóknarhúsinu. Þar fer fram málefnavinna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og er öllum íbúum boðið að taka þátt. Unnið verður í hópum.
Málefnavinnan fer fram frá 10:00 til 12:30 og verður boðið upp á súpu fyrir alla þátttakendur.
Við hvetjum félagsmenn sem og alla íbúa Grindavíkur til að mæta og taka þátt og hafa þannig áhrif á málefnavinnu flokksins.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á laugardaginn kemur
Framsóknarfélag Grindavíkur