Umhverfisdagar á Suđurnesjum 22. - 26. apríl 2014

  • Fréttir
  • 23. apríl 2014

Dagana 22. til 26. apríl n.k. eru íbúar allra sveitarfélaga á Suðurnesjum hvattir til þátttöku í fegrun og snyrtingu umhverfisins. Öll heimili á Suðurnesjum geta losað sig við rusl og annan úrgang án þess að greiða fyrir, á staði sem tilgreindir eru hér í þessari auglýsingu föstudaginn 25. apríl og laugardaginn 26. apríl. 

Stöndum öll saman að því að halda umhverfi okkar hreinu og notum þessa umhverfisdaga til að hreinsa til í kringum okkur og koma ruslinu frá okkur.

Hvetjum yngri sem eldri til að aðstoða við að hreinsun umhverfisins og sýnum öllum hvað er gott að hafa umhverfið hreint og snyrtilegt.

Móttökustaðir fyrir rusl og annan úrgang eru eftirtaldir: 
 Í Vogum á gámaplani Kölku við Jónsvör
 Í Grindavík á gámaplani Kölku við Nesveg
 Í Garði á lóð áhaldahúss bæjarins við Gerðaveg
 Í Sandgerði á lóð áhaldahúss bæjarins við Strandgötu. 
 Í Reykjanesbæ eru þrjú eftirtalin móttökusvæði:
 Á gámaplani Kölku í Helguvík
 Í Dalshverfi í Innri - Njarðvík 
 Á Ásbrú 

Gjaldfrjálsir opnunartímar á móttökusvæðum er frá kl. 10:00. til 18:00 báða dagana, 25. og 26. apríl. Starfsmenn okkar munu taka vel á móti ykkur og munið að það flýtir mikið fyrir að koma með ruslið vel flokkað. 
Nánari upplýsingar má fá hjá Kölku í síma 421-8010.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!