1347. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 1. apríl 2014 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Kristín María Birgisdóttir formaður, Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm varaformaður, Marta Sigurðardóttir aðalmaður, Guðmundur L. Pálsson áheyrnarfulltrúi, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. 1303048 - Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar tekin til umræðu milli fyrri og seinni umræðu í bæjarstjórn.
Tillögunni er vísað til frekari umræðu í bæjarráði.
2. 1302039 - Sala félagslegra íbúða í eigu Grindavíkurbæjar
Farið yfir stefnu Grindavíkurbæjar um sölu félagslegra íbúða. Bæjarstjóri fór yfir biðlista um félagslegar íbúðir.
Ein íbúð er að losna. Bæjarráð samþykkir að auglýsa hana ekki til sölu heldur felur félagsmálanefnd að úthluta henni.
3. 1403088 - Ósk um leigu á Melhólsnámu í Grindavík
Jón og Margeir ehf. hafa óskað eftir að leigja Melhólsnámu til efnistöku á allt að 45.000 m3 af efni á tíu ára tímabili. Skipulags- og umhverfisnefnd hefur hafnað erindinu, en lagt til að sviðstjóra verði falið að hefja undirbúning að útboði.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar og felur sviðsstjóra að auglýsa útboðið.
4. 1403141 - Aðalfundur Landverndar 2014, þann 5. apríl kl. 13:00-17:30
Boð á aðalfund Landverndar þann 5.apríl lagt fram.
5. 1403121 - Boð um heimsókn á menningarhátíð í Piteå
Bæjarstjórn Piteå vinabæjar Grindavíkur í Svíþjóð býður fulltrúum Grindavíkurbæjar að sækja menningarhátíðina Festspelen i Piteå sem fram fer 13.-18. júní næstkomandi.
Fulltrúum Piteå var boðið á menningarhátíð Grindavíkurbæjar í mars og vilja þau gjalda greiðann.
Bæjarráð samþykkir að senda fulltrúa á hátíðina. Í hópnum verði bæjarstjóri, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, fulltrúi tónlistarskóla og 2-3 kjörnir fulltrúar.
6. 1403142 - Samstæðuspil fyrir börn sem eru að byrja í grunnskóla.
Bjarný Sigmarsdóttir óskar eftir styrk til að gera umferðarspil fyrir börn í grunnskóla.
Bæjarráð vísar tillögunni til umsagnar í fræðslunefnd.
7. 1403156 - Sögu- og minjafélag Grindavíkur óskar eftir styrk
Sögu- og minjafélag Grindavíkur óskar eftir styrk til að varðveita og endurskapa eldri hús í gamla bænum.
Erindinu er vísað til umsagnar í frístunda-og menningarnefnd.
8. 1402010 - Öldungaráð á Suðurnesjum
Félag eldri borgara á Suðurnesjum hefur samþykkt tillögu um stofnun Öldungaráðs á Suðurnesjum sem skuli gæta hagsmuna eldri borgara og vera bæjarstjórnum til ráðgjafar.
Óskað er eftir því að Grindavíkurbær tilnefni tvo fulltrúa í undirbúningsnefnd að stofnun Öldungaráðs. Bæjarráð felur félagsmálanefnd að tilnefna tvo fulltrúa í nefndina.
9. 1403109 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2014, beiðni frá slökkviliðsstjóra
Slökkvistjóri óskar eftir viðauka við fjárhagáætlun ársins 2014. Viðaukinn snýr að því að fella út lið af eignfærðri fjárfestingu að fjárhæð 1.300.000 kr. og hækka rekstrarlykilinn 07211-2853 Ýmis búnaður um 520.000 kr. Mismunur kr. 780.000 kr. kemur til hækkunar á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur.
10. 1403157 - Tillögur Ungmennaráðs Grindavíkur til bæjarstjórnar 2014
Fundargerð ungmennaráðs dags. 31. mars 2014 lögð fram.
11. 1309091 - 40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs lagt fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:55.