Undirbúningur fyrir hátíðarhöld Sjómannadagsins og bæjarhátíðina Sjóarann síkáta ganga vel. Í dag var haldinn fyrsti sameiginlegi undirbúningsfundur Grindavíkurbæjar, Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar og slysavarnadeildarinnar Þórkötlu. Dagskráin er óðum farin að taka á sig mynd. Þeir sem vilja koma inn dagskráefni í opinbera dagskrár hátíðarinnar þurfa að gera það eigi síðar en 10. maí nk. á netfangið sjoarinnsikati@grindavik.is
Næstu fundir vegna Sjóarans síkáta eru:
Sjómanna- og fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík hefur fest sig í sessi sem ein skemmtilegasta og fjölbreyttasta bæjarhátíð landsins haldin um Sjómannadagshelgina, 30. maí - 1. júní 2014, til heiðurs íslenska sjómanninum og fjölskyldu hans. Hátíðin hefur vaxið með hverju árinu, þar er fjölbreytt dagskrá alla helgina en mikið er lagt upp úr vandaðri barnadagskrá. Líkt og undanfarin þrjú ár verður bænum skipt upp í fjögur litahverfi.
Skipulagning hátíðarinnar er í umsjá Þorsteins Gunnarssonar, sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs.
Hægt er að beina almennum fyrirspurnum í síma 420 1100.
Sjóarinn síkáti: sjoarinnsikati@grindavik.is • www.sjoarinnsikati.is
Umsjón: Grindavíkurbær í samstarfi við Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur.
Hverfaskipting:
Appelsínugula hverfið (bátar) • Liðsstjóri: Jón Berg Reynisson jonbr@centrum.is. Sími 893 6072.
Bláa hverfið (krabbar) • Liðsstjóri: Vilhelm Arason, villiara@simnet.is. Sími 861 5002.
Græna hverfið (skeljar) • Liðsstjóri: Sólveig Ólafsdóttir, sollaola@simnet.is. Sími 698 8115.
Rauða hverfið (fiskar) • Liðsstjóri: Fríða Egilsdóttir freda@grindavik.is. Sími 847 9859.
Viltu vera með sölubás? Boðið er upp á aðstöðu fyrir sölubása á hátíðarsvæðinu. Aðstaðan verður í tveimur uppblásnum tjöldum.
Staðsetning: Á lóð Kvikunnar, auðlinda- og menningarhúss Grindavíkur, við Hafnagötu.
Tímasetning:
Laugardaginn 31. maí frá kl. 13:00-17:00
Sunnudaginn 1. júní frá kl. 13:00-17:00
Reglur
Heimilt er að selja allan heimagerðan varning.
Bannað er að selja allt matarkyns og einnig sælgæti.
Söluaðilar þurfa að koma með eigið borð, tjald og rafmagn.
Greiða þarf fyrir aðstöðuna 3.000 kr.
Skylt er að skrá sig með því að senda upplýsingar um;
Nafn - Kennitala - Símanúmer - netfang, og senda á netfangið grindavik@grindavik.is. Lokafrestur til skráningar er til og með 24. maí.