Athöfnin í Grindavíkurkirkju í tilefni 40 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar var í senn hátíðleg og glæsileg. Ávörp fluttu herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Marta Sigurðardóttir bæjarfulltrúi fyrir hönd bæjarstjórnar, Ásgeir Eiríksson formaður Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Helena Stenberg varaborgarstjóri í Piteå, vinabæ Grindavíkur í Svíþjóð. Þá fengu sex Grindvíkingar heiðursverðlaun Grindavíkurbæjar. Jafnframt voru glæsileg tónlistaratriði sem báru Tónlistarskóla Grindavíkur glæsilegt vitni.
Að lokinni athöfninni var gestum boðið í veitingar í safnaðarheimilinu.
Guðfinna Magnúsdóttir tók meðfylgjandi myndir frá þessari fallegu athöfn í kirkjunni. Viðstaddir voru m.a. bæjarstjórar og bæjarfulltrúar á Suðurnesjum og Ölfusi, alþingismenn kjördæmisins, tveir fyrrverandi bæjarstjórar og fleiri góðir gestir.
Veg og vanda af undirbúningi 40 ára kaupstaðarafmælisins hafði afmælisnefnd bæjarins sem skipa: Birna Bjarnadóttir, Erla Ósk Wissler Pétursdóttir, Jóna Rut Jónsdóttir, Kristín María Birgisdóttir, Margrét Rut Reynisdóttir og Þorsteinn Gunnarsson sem jafnframt var starfsmaður nefndarinnar.
Lögreglan stóð heiðursvörð fyrir utan kirkjuna þegar gestir mættu til athafnarinnar.
Sigurður Bergmann aðalvarðstjóri tók á móti Dagbjarti Einarssyni og Birnu Óladóttur með handabandi.
Forsetabíllinn fyrir utan Grindavíkurkirkju.
Telma Sif Reynisdóttir lék á þverflautu og Renata Ivan á píanó. Þær spiluðu saman Cocerto í D-dúr, 3. þátt eftir Luigi Boccherini. Þetta atriði var frá tónlistarskóla Grindavíkur.
Gestir á afmælisathöfninni..
Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri í Vogum og formaður Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum flutti ávarp fyrir hönd sveitarfélaganna.
Guðmundur Pálsson bæjarfulltrúi, Ólöf Bolladóttir, Jóhann Þ. Þórisson, Birna Björnsdóttir í afmælisnefndinni og Jóna Rut Jónsdóttir í afmælisnefndinni.
Anna-Lena og Helena Stenberg frá Piteå í Svíþjóð ásamt Bryndísi Gunnlaugsdóttur forseta bæjarstjórnar.
Sexmenningarnir sem fengu heiðursviðurkenningu Grindavíkurbæjar (sjá nánari upplýsingar í annarri frétt). Frá vinstri: Bogi G. Hallgrímsson, fyrir framúrskarandi störf á vettvangi bæjarmála og íþróttahreyfingarinnar í Grindavíkurbæ. Jóhanna A. Sigurðardóttir, fyrir framúrskarandi störf í þágu félags- og menningarmála í Grindavíkurbæ. Petra Guðrún Stefánsdóttir, fyrir framúrskarandi störf í þágu félags- og mannúðarmála í Grindavíkurbæ. Birna Óladóttir, fyrir framúrskarandi störf í þágu félagsmála í Grindavíkurbæ. Jóhannes Haraldsson, fyrir framúrskarandi störf á vettvangi íþróttahreyfingarinnar í Grindavíkurbæ. Edvard Júlíusson, fyrir framúrskarandi störf á vettvangi atvinnulífs og bæjarmála í Grindavíkurbæ.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hélt ræðu í tilefni dagsins.
Rósalind Gísladóttir mezzósópra söng tvö lög við athöfnina með glæsibrag við undirleik Renötu Ivan. Annars vegar Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns, ljóð eftir Indriða Einarsson. Hins vegar lagið Ég lít í anda liðna tíð eftir Sigvalda Kaldalóns. Ljóðið samdi Halla Eyjólfsdóttir.
Marta Sigurðardóttir bæjarfulltrúi flutti ávarp fyrir hönd bæjarstjórnar Grindavíkur. Ávarpið má lesa hér.
Róbert Ragnarsson bæjarstjóri var kynnir.
Nína Marín Dagbjartsdóttir frá tónlistarskóla Grindavíkur lék á píanó: C-dúr Sonatina, 1. þátt eftir Kuhlau og gerði það lista vel.
Kór Grindavíkurkirkju opnaði athöfnina með laginu Grindvíkingur. Örn Arnarson gerði ljóðið en lagið gerði Sigvaldi Kaldalóns en hann var héraðslæknir og tónskáld í Grindavík um hríð.
Jafnframt söng kórinn lokalag athafnarinnar: Vísur að vestan (líka þekkt sem Gunna litla í Garði). Steinn Steinar gerði ljóðið þegar hann bjó í Grindavík og varð ástfanginn af stúlku hér. Lagið er eftir Valgeir Guðjónsson.
Einar Njálsson fyrrverandi bæjarstjóri var viðstaddur athöfnina. Hér er hann á spjalli við Jóhönnu A. Sigurðardóttur heiðursverðlaunahafa.
Petra Guðrún Stefánsdóttir í góðum félagsskap.
Frænkurnar Sólný Pálsdóttir og Rósa Signý Baldursdóttir voru á meðal gesta.
Í safnaðarheimilinu var svo boðið upp á veisluborð með pinnamat, snittum og afmælistertum.