Nemendur og foreldrar í fyrsta A komu saman á bekkjarkvöldi nú í nóvember og í febrúar. Mætingin hefur verið mjög góð eða nánast 100 prósent. Fyrra kvöldið var spilað á alls kyns spil en seinna kvöldið var spilað bingó þar sem bingóstjóri var Kristólína Þorláksdóttir en hún er margreyndur bingóstjóri.
Börnin voru til fyrirmyndar og þeim fannst voða spennandi að mega koma með drykk að eigin vali í skólann og gott í poka.Foreldrar stungu uppá því á haustfundi að allir foreldrar kæmu að bekkjarfulltrúastarfinu á hverju ári og að bekkjarkvöldin yrðu þrjú, á fundinum var ákveðið að hafa bekkjarkvöldin í nóvember, febrúar-mars og svo maí. Að sögn Önnu Lilju Jóhannsdóttur kennara var hún í samráði við foreldra um hvernig þeir vildu haga starfinu. Það varð úr að hún skipti hópnum í þrennt þannig að það eru 8 bekkjarfulltrúar hverju sinni, hún númeraði alla frá einum til átta og fulltrúar sem eru númer eitt í hverjum hóp sjá um að kalla saman hina bekkjarfulltrúana og virka þá sem nokkurs konar hópstjórar. Á næsta skólaári gengur það svo þannig að þeir sem eru númer tvö á listanum verða hópstjórar og svo koll af kolli. Gott samstarf heimila og skóla eykur án efa á vellíðan, virkni og virðingu nemenda í skólanum.