3 dagar í menningarveisluna: Mćtum á sem flesta viđburđi
3 dagar í menningarveisluna: Mćtum á sem flesta viđburđi

Í lok mars verða menningardagar hjá okkur hér í Grindavík. Grindavíkurbær stendur fyrir skipulagðri menningardagskrá sem ætlað er að höfða og ná til sem flestra aldurshópa hér í bæ. 

Góður hópur fólks hefur lagst á eitt um að galdra fram fjölbreytta og spennandi viðburði og uppákomur sem fram fara dagana 21. -28.mars.

Helsta keppikefli skipuleggjenda er að virkja Grindvíkinga til sköpunar og þátttöku á menningardögunum og að samfélagið allt leggi sitt af mörkum til að sýna og sanna að hér í bæ býr áhugavert, skapandi og virkt fólk, fólk sem ræktar með sér hæfileika sína og áhugasvið og hefur fundið þeim farveg.

Ég skora á bæjarbúa að kynna sér efni þessarar menningarveislu og mæta á sem flesta viðburði með það að leiðarljósi að maður er mannsins gaman í lífsins ólgusjó!

Stefnt er að því að menningardagarnir okkar verði gerðir að árlegum viðburði.

Rósa Signý Baldursdóttir 
Formaður Menningar- og bókasafnsnefndar.