Codland sem er fyrirtækjaklasi í tengslum við fullvinnslu opnar á morgun Þekkingarsetur í Kvikunni í Grindavík á efri hæð hússins. Allir gestir Sjóarans síkáta eru velkomnir í heimsókn. Þar munu starfa í sumar fjórir einstaklingar sem sinna munu ýmsum verkefnum sem lúta að markaðssetningu aukaafurða, fullvinnslu aukaafurða o.fl. Þá verða einnig í setrinu starfandi nokkur lítil fyrirtæki sem tengjast fullvinnslu afurða.
Codland er í eigu Vísis og Þorbjarnar en ýmis fyrirtæki koma einnig að samstarfi innan Codlands.
Ýmis uppbygging í hafsækinni starfsemi á sér nú stað í Grindavík eins og fullvinnsla sjávarafurða, líftækni, haftengd ferðaþjónusta, framleiðsla á snyrtivörum og margt fleira. Ýmis þessara verkefna eru unnin í samvinnu fyrirtækja, Matís og fleiri aðila.