429. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 16. apríl 2013 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm forseti, Kristín María Birgisdóttir 1. varaforseti, Guðmundur L. Pálsson aðalmaður, Marta Sigurðardóttir aðalmaður og Jón Þórisson Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Aukafundur í bæjarstjórn
Bæjarstjórn samþykkir í upphafi fundar að afsala sér launum fyrir fundinn, í ljósi þess að um stuttan aukafund er að ræða, en þess í stað verja fjármununum til góðgerðarmála í Grindavík.
Dagskrá:
1. 1303067 - Kjörskrá fyrir alþingiskosningar 27. apríl 2013
Til máls tók Bryndís.
Tillaga
Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að semja kjörskrá. Jafnframt er bæjarstjóra veitt fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi vegna Alþingiskosninga 27. apríl nk. í samræmi við 27. gr. laga um kosningar til Alþingis.
Samþykkt samhljóða
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:10.