428. fundur Bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 26. mars 2013 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Bryndís Gunnlaugsdóttir forseti, Kristín María Birgisdóttir 1. varaforseti, Guðmundur L. Pálsson aðalmaður, Marta Sigurðardóttir aðalmaður, Páll Jóhann Pálsson aðalmaður, Páll Gíslason varamaður, Lovísa Hilmarsdóttir varamaður, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Ingvar Þór Gunnlaugsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. 1303026 - Breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðis 2001-2024, kynning á tillögu á vinnslustigi
Ingvar Þór Gunnlaugsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu óska eftir umsögn um drög að svæðisskipulagstillögu fyrir höfuðborgarsvæðið.
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir engar athugasemdir.
Bæjarstjórn gerir engar athugasemdir.
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Ingvar og Róbert.
2. 1204039 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Ingvar Þór Gunnlaugsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Fundargerð 38. fundar og drög að starfsreglum fyrir samstarfsnefnd um svæðisskipulag á Suðurnesjum lögð fram.
Forseti leggur til að í starfsreglum verði heimilt fyrir bæjarstjóra sitja fundi nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétt, en ekki atkvæðisrétt nema þeir séu kjörnir í nefndina.
Samþykkt samhljóða og fulltrúum Grindavíkurbæjar falið að leggja breytingatillöguna fram í samstarfsnefndinni.
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Róbert og Kristín María.
3. 1303028 - Deiliskipulag miðbæjar - Ránargata og Hafnargata
Ingvar Þór Gunnlaugsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Kynning á valkostum við skipulag hafnarsvæðis lögð fram. Verkefnið er annar áfangi skipulags miðbæjarsvæðis sem hófst með íbúafundi í október 2010, en fyrri hluti skipulagsins er í kynningarferli.
Forseti leggur til að skipulags- og umhverfisnefnd verði falið að vinna áfram í málinu.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Páll Jóhann, Marta, Ingvar, Kristín María og Páll Jóhann.
4. 0812033 - Deiliskipulag vegna Vatnskarðsnáma
Ingvar Þór Gunnlaugsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Deiliskipulagstillaga tekin fyrir aftur skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga að lokinni endurauglýsing. Engar athugasemdir bárust. Jafnframt er tillagan afgreidd skv. 9. gr. laga um umhverfismat áætlana.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að skipulagstillagan og greinargerð með endanlegri áætlun með vísan til. 9. gr. laga um umhverfismat áætlana verði samþykkt.
Forseti ber upp tillögu nefndarinnar.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tók: Bryndís.
5. 1209014 - Ósk um breytingu á deiliskipulagi Norðurhóps
Ingvar Þór Gunnlaugsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Lögð er fram samþykkt grenndarkynning fyrir breytingu á deiliskipulagi fyrir Norðurhóp í Grindavík. Breytingin felst í því að þremur lóðum fyrir raðhús fyrir 9 íbúðir er breytt í þrjár parhúsalóðir fyrir sex íbúðir. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að grenndarkynningin verði samþykkt með vísan til. 3.mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Forseti leggur til að tillaga skipulags- og umhverfisnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Ingvar, Marta og Páll Jóhann.
6. 1209012 - Nýtt deiliskipulag fyrir íþróttasvæðið í Grindavík
Ingvar Þór Gunnlaugsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Deiliskipulagstillagan tekinn fyrir aftur eftir auglýsingartíma. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að skilmálar á byggingareit A og D verði rýmkaðir og að skipulagið verði samþykkt með þeirri breytingu með vísan til 3. mgr. 41. greinar skipulagslaga.
Forseti leggur til að tillaga skipulags- og umhverfisnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: Bryndís og Páll Jóhann.
7. 1302061 - Undirskriftarlisti vegna óska um breytingar á skipulagi í Dalbraut og Laut
Ingvar Þór Gunnlaugsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Undirskriftarlisti með ósk um breytingu á skipulagi í Laut er lagður fram. Bæjarráð óskaði eftir umsögn skipulags- og umhverfisnefndar.
Skipulags- og umhverfisnefnd hefur fjallað um óskina og bendir á að í gildi sé deiliskipulag fyrir Dalbraut og Laut og forsendur hafi ekki breyst frá því að það var samþykkt.
Forseti leggur til að bæjarstjórn taki undir umsögn skipulags- og umhverfisnefndar og telji ekki rétt að breyta deiliskipulagi að svo stöddu og feli sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ganga frá svæðinu.
Forseti veitti 15 mínútna fundarhlé kl. 18.15.
Fundur settur aftur 18.30.
Oddviti G-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Það er mat oddvita G-listans að skipulag svæðisins hafi verið illa ígrundað og án allrar samvinnu eða samráðs við þá íbúa sem fyrir voru. Þétting byggðar er vel skiljanleg og það hefur sannarlega verið gert á svæði Lautar enda bæði komin einbýlishúsabyggð, leiksskóli og þrjú fjölbýlishús. Hátt í 70 manns á svæðinu hafa óskað eftir því að slakað verði á þéttingu byggðar og í staðinn komi grænt svæði. Það er skoðun oddvita að reynt verði eftir fremsta megni að vinna skipulag svæðisins í sátt við íbúa þess. Í skipulagsvinnu um gamla bæinn kom skýrt fram af hálfu íbúa að umrætt svæði ætti að tilheyra gamla bænum. Þrátt fyrir að enn sé töluvert í að sú vinna verði kláruð og kynnt þá er kjörið tækifæri til að taka þær lóðir sem eftir standa inn í þá deiliskipulagsvinnu.
Oddviti G-listans
Forseti ber tillögu sína upp að nýju.
Samþykkt með sex atkvæðum, einn situr hjá.
Til máls tóku: Bryndís, Kristín María, Páll Jóhann, Guðmundur og Marta.
8. 1303036 - Rammaskipulag neðri hluta iðnaðarsvæðis merkt i5 á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030.
Ingvar Þór Gunnlaugsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til unnið verði rammaskipulag fyrir iðnaðarsvæði merkt i5 á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030.
Forseti leggur til að tillaga nefndarinnar verði samþykkt og henni falið að hefja vinnu við gerð rammaskipulags svæðisins.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: Bryndís, Marta, Guðmundur, Ingvar og Páll Jóhann.
9. 1303015 - Beiðni um breytingu á vegtengingu frá hafnarsvæði
Ingvar Þór Gunnlaugsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Haustak hf. og Síldarvinnslan hf. óska eftir því að Grindavíkurbær beiti sér fyrir betri vegtengingu frá hafnarsvæðinu vestur að Nesvegi og endurbótum á ákveðnum köflum á Nesvegi í ljósi þess að flutningar milli Grindavíkurhafnar og Reykjaness fara sífellt vaxandi.
Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar skipulags- og umhverfisnefndar.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að farið verði í að endurhanna vegtengingu inn á Nesveg frá hafnarsvæði.
Forseti leggur til að skipulags- og umhverfisnefnd verði falið að vinna málið áfram og gæta að tengslum við skipulag gamla bæjarins sem er að hefjast.
Bæjarstjóra verði jafnframt falið að taka upp viðræður við Vegagerðina um aðkomu þeirra að framkvæmdinni.
Samþykkt með sex atkvæðum, einn situr hjá.
Til máls tóku: Bryndís, Marta, Páll Jóhann, Kristín María, Ingvar og Róbert.
10. 1302048 - Beiðni um umsögn um umsókn HS Orku hf. vegna á nýtingarleyfis á grunnvatni, í formi ferskvatns, í landi Staðar, Grindavíkurbæ.
Ingvar Þór Gunnlaugsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Með vísan til 3.mgr. 6.gr. auðlindalaga er leitað umsagnar Grindavíkurbæjar um umsókn HS-Orku hf. um nýtingarleyfi á grunnvatni í landi Staðar.
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir engar athugasemdir við erindið.
Bæjarstjórn gerir ekki athugsemdir við erindið.
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur og Páll Gíslason.
11. 1301004 - Efnis- og nýtingaráætlun ásamt útboðsgögnum vegna Melhólsnámu
Ingvar Þór Gunnlaugsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð óskaði eftir tillögum skipulags- og umhverfisnefndar um nýtingu námunnar í kjölfar þess að öllum tilboðum í rekstur hennar var hafnað.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að námunni verði haldið opinni til verkefna á vegum bæjarins og að send verði vinnsluáætlun til Umhverfisstofnunar til umsagnar skv. náttúruverndarlögum. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs verði falið að loka aðgengi að námunni.
Forseti leggur til að tillaga nefndarinnar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Ingvar, Róbert, Páll Jóhann, Marta og Páll Gíslason.
12. 1302039 - Sala félagslegra íbúða í eigu Grindavíkurbæjar
Undirritað kauptilboð í eignina Leynisbraut 13c íbúð 0101 lagt fram til staðfestingar með fyrirvara um að kaupandi standist greiðslumat.
Bæjarstjórn staðfestir samninginn samhljóða.
Til máls tóku: Bryndís,
13. 1303025 - 235.fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja haldinn 7.mars 2013
Fundargerðin er lögð fram.
Til máls tók: Allir.
14. 1303007 - 24.fundur Heklunnar. Fundargerð
Fundargerðin er lögð fram.
Til máls tóku: Allir.
15. 1303008 - 25.fundur Heklunnar. Fundargerð.
Fundargerðin er lögð fram.
Til máls tóku: Allir.
16. 1303004F - Bæjarráð Grindavíkur - 1314
Fundargerðin er lögð fram.
Til máls tóku: Allir.
17. 1303001F - Bæjarráð Grindavíkur - 1313
Fundargerðin er lögð fram.
Til máls tóku: Allir.
18. 1302015F - Bæjarráð Grindavíkur - 1312
Fundargerðin er lögð fram.
Til máls tóku: Allir.
19. 1303003F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 23
Fundargerðin er lögð fram.
Til máls tóku: Allir.
20. 1302014F - Frístunda- og menningarnefnd - 19
Fundargerðin er lögð fram.
Til máls tóku: Allir.
21. 1302011F - Fræðslunefnd - 15
Fundargerðin er lögð fram.
Til máls tóku: Allir.
22. 1302005F - Félagsmálanefnd - 18
Fundargerðin er lögð fram.
Til máls tóku: Allir.
23. 1302008F - Afgreiðslunefnd byggingamála - 3
Fundargerðin er lögð fram.
Til máls tóku: Allir.
24. 1303043 - Fundargerð 434. fundar stjórnar Kölku
Fundargerðin er lögð fram.
Til máls tóku: Allir.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00.