426. fundur Bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 29. janúar 2013 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Bryndís Gunnlaugsdóttir forseti, Kristín María Birgisdóttir 1. varaforseti, Guðmundur L. Pálsson aðalmaður, Páll Jóhann Pálsson aðalmaður, Dagbjartur Willardsson aðalmaður, Marta Sigurðardóttir aðalmaður, Hilmar E Helgason varamaður, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri, Jón Þórisson Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Ingvar Þór Gunnlaugsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Forseti býður Mörtu Sigurðardóttur velkomna til síns fyrsta fundar sem aðalmaður í bæjarstjórn Grindavíkur.
Dagskrá:
1. 1211061 - Tillaga að skipulagi gamla hluta Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, bæjarstjóri, Kristín María, Marta, Páll Jóhann, Dagbjartur, Hilmar.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að vinna við deiliskipulag gamla bæjarins verði endurvakin og haldinn verði íbúafundur um skipulag svæðisins.
Tillaga
Bæjarstjórn samþykkir að hefja vinnu á ný við skipulag svæðisins og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að undirbúa íbúafund.
Samþykkt samhljóða
2. 1301004 - Efnis- og nýtingaráætlun ásamt útboðsgögnum vegna Melhólsnámu
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Páll Jóhann.
Skipulags- og umhverfisnefnd hefur látið vinna nýtingaráætlun og útboðsgögn fyrir Melhólsnámu. Gögnin eru unnin af Eflu verkfræðistofu í janúar 2013
Tillaga
Bæjarstjórn felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að auglýsa útboð.
Samþykkt samhljóða
3. 1207004 - Umsókn um heimild til að setja upp minnisvarða um áhöfn og sögu flugvélar sem fórst í Fagradalsfjalli 3. maí 1943
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Til máls tóku: Bryndís, Páll Jóhann, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, bæjarstjóri, Marta og Kristín María.
Áhugamenn um um flugsögu stríðsáranna á Íslandi hafa óskað eftir heimild til að setja upp minnisvarða um áhöfn og sögu flugvélar sem fórst í Fagradalsfjalli 3. maí 1943.
Tillaga að staðsetningu er austan við veg 43, Grindavíkurveg, við svæði þar sem áður stóðu fiskhjallar. Tenging við þjóðveginn er því til staðar. Frá þessum stað er góð sjónlína á slysstaðinn í fjallinu og aðgengi gott. Umsagnir landeiganda og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja liggja fyrir.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að útbúa lóð fyrir minnisvarðann í samstarfi við landeiganda.
4. 1301003 - Forgreining raforkukostnaðar og tilboð
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Til máls tóku: Bryndís, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, bæjarstjóri, Marta, Guðmundur og Hilmar
Skipulags- og umhverfisnefnd hefur látið vinna fyrir sig tilboð og hugmyndir að sparnaði í orkukaupum til stofnana bæjarins.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa málinu aftur til nefndarinnar til nánari útfærslu.
5. 1212040 - Kæra Landverndar vegna affallsvatns úr Svartsengi í sjó.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Til máls tók: Bryndís
Lögð er fram kæra Landverndar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála ásamt fylgigögnum, þar sem kærð er ákvörðun Skipulagsstofnunar um matskyldu fráveitu affallsvatns úr Svartsengi í sjó.
Einnig leggur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fram tillögu að svarbréfi dags. janúar 2013.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að svör Grindavíkurbæjar verði í samræmi við fyrirliggjandi drög að svari.
Bæjarstjórn felur sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs að svara erindinu í samræmi við fyrirliggjandi drög.
6. 1301044 - 18.aðalfundur Samorku.
Til máls tók: Bryndís
Samorka boðar til aðalfundar á Grand Hótel Reykjavík 22. febrúar 2013. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Bæjarstjórn felur Ingvari Þór Gunnlaugssyni sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að fara með umboð Grindavíkurbæjar á fundinum.
7. 1301048 - Aðalfundur Suðurlinda 11. febrúar 2013.
Til máls tók: Bryndís, Guðmundur, Páll Jóhann og Kristín María
Stjórn Suðurlinda ohf. boðar til aðalfundar félagsins þann 11. febrúar næstkomandi á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62, kl. 17.
Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við 12. gr. samþykkta félagsins. Auk þess munu fara fram umræða um tilgang og framtíðar félagsins.
Tillaga
Bæjarstjórn felur Páli Jóhanni Pálssyni að fara með umboð Grindavíkurbæjar á fundinum.
Samþykkt samhljóða
Tillaga
Bæjarstjórn telur að félagið hafi skilað hlutverki sínu og hafi ekki lengur tilgang, því sé rétt að slíta félaginu og finna samstarfinu annan farveg.
Samþykkt með 6 atkvæðum, Guðmundur situr hjá.
8. 1301021 - Aðild Grindavíkurbæjar að Íslenska sjávarklasanum
Til máls tóku: Bryndís og Guðmundur
Undirritaður samningur lagður fram til staðfestingar. Kostnaður er 400.000 kr á ári.
Tillaga
Bæjarstjórn staðfestir samninginn og samþykkir að gera viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð 400.000 á málaflokk 13, atvinnumál. Kostnaðarauka er mætt með lækkun á handbæru fé.
Samþykkt samhljóða
9. 1204011 - Endur- og símenntun starfsmanna
Til máls tók: Bryndís
Undirritaður samningur milli Grindavíkurbæjar og Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum um gerð símenntunaráætlunar fyrir starfsemi bæjarins lagður fram til staðfestingar.
Samningurinn er samþykktur samhljóða.
10. 1301027 - Stjórn Reykjanesfólkvangs óskar eftir auknum framlögum frá aðildarsveitarfélögum.
Til máls tóku: Bryndís, Kristín María, Guðmundur, bæjarstjóri, Páll Jóhann og Hilmar og Marta
Tillaga
Bæjarstjórn vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarráði og felur bæjarráði jafnframt að fjalla um drög að stjórnunaráætlun Reykjanesfólkvangs.
Samþykkt samhljóða
11. 1301042 - Framtíðarsýn í velferðarmálum. Niðurstöður Heimskaffis Velferðarvaktarinnar.
Til máls tók: Bryndís
Skýrsla með niðurstöðum heimskaffis Velferðarvaktarinnar. Framtíðarsýn í velferðarmálum á Suðurnesjum er lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa skýrslunni til umfjöllunar í félagsmálanefnd.
12. 1211053 - Samningar við félagasamtök
Til máls tók: Bryndís
Undirritaðir samningar við félag eldri borgara, Þórkötlu og Þorbjörn lagðir fram til staðfestingar.
Samningarnir eru samþykktir samhljóða.
13. 1301018 - 23.fundur Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja. Fundargerð.
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
14. 1212048 - 233.fundur heilbrigðisnefndar Suðurnesja.
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
15. 1212049 - 650. stjórnarfundur S.S.S.
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
16. 1301045 - 651. stjórnarfundur SSS. Fundargerð
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
17. 1301054 - Fundargerð 432. stjórnarfundar Kölku
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
18. 1301055 - Fundargerð félagsfundar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja 10. janúar 2013.
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
19. 1212029 - Fundargerð þriðja fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
20. 1301053 - Fundargerðir stjórnar Reykjanes jarðvangs ses
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
21. 1212031 - Fundargerðir 431. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
22. 1301002F - Bæjarráð Grindavíkur - 1307
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
23. 1301004F - Bæjarráð Grindavíkur - 1308
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
24. 1212008F - Félagsmálanefnd - 16
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
25. 1301008F - Félagsmálanefnd - 17
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
26. 1212010F - Frístunda- og menningarnefnd - 17
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
27. 1301005F - Fræðslunefnd - 14
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
28. 1301006F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 21
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:15.