null
424. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 27. nóvember 2012 og hófst hann kl.
17:00.
Fundinn sátu:
Bryndís Gunnlaugsdóttir forseti, Páll Valur Björnsson 2. varaforseti, Guðmundur L. Pálsson aðalmaður, Dagbjartur Willardsson aðalmaður, Hilmar E Helgason varamaður, Páll Gíslason varamaður, Lovísa Hilmarsdóttir varamaður, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. 1204039 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Til máls tóku: Guðmundur, bæjarstjóri og Páll Valur
Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja leggur fram Svæðisskipulag Suðurnesja 2008-2024 til samþykktar hlutaðeigandi sveitarstjórna, skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar og Landhelgisgæslunnar skv. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samvinnunefndin samþykkti tillöguna samhljóða á fundi sínum 12. nóvember sl. Skipulagsgögnin eru greinargerð, dags. nóvember 2012, umhverfisskýrsla, dags. nóvember 2012, viðbrögð samvinnunefndar við athugasemdum og greinargerð skv. 9. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.
Þegar allir hlutaðeigandi aðilar hafa samþykkt svæðisskipulagið, mun samvinnunefndin senda það til staðfestingar Skipulagsstofnunar.
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkir samhljóða Svæðisskipulag Suðurnesja 2008-2024, ásamt umhverfisskýrslu.
Einnig vill bæjarstjórn Grindavíkur þakka nefndarmönnum fyrir góð störf í samvinnunefnd um svæðisskipulag á Suðurnesjum en í henni hafa setið Ólafur Guðbjartsson, Sigurður Ágústsson, Guðmundur Pálsson, Ólafur Örn Ólafsson og Róbert Ragnarsson.
2. 1211049 - Áríðandi tilkynning varðandi gildi deiliskipulags sem birt hefur verið í Stjórnartíðindum árin 2011-2012.
Til máls tóku: Guðmundur og Bryndís.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Tilkynning Skipulagsstofnunar dags. 9. nóvember í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar skipulags- og umhverfismála nr.30/2012 í máli nr. 80/2011. Úrskurðurinn varðar gildi deiliskipulagsáætlana sem birtar hafa verið í B-deild Stjórnartíðinda á árunum 2011-2012.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fara að fyrirmælum Skipulagsstofnunar sem felur í sér að endurauglýsa þarf fjórar deiliskipulagstillögur.
3. 1112025 - Breyting á deiliskipulagi við Bláa Lónið í Grindavík
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum
Deiliskipulagstillagan er tekin fyrir aftur vegna úrskurðar úrskurðarnefndar skipulags- og umhverfismála nr.30/2012 í máli nr. 80/2011.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að endurauglýsa deiliskipulagið ásamt umhverfisskýrslu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4. 1111042 - Deiliskipulag fyrir iðnaðarsvæði/hafnarsvæði í Grindavík. Málsmeðferð eftir auglýsingu
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Deiliskipulagstillagan er tekin fyrir aftur vegna úrskurðar úrskurðarnefndar skipulags- og umhverfismála nr.30/2012 í máli nr. 80/2011.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að endurauglýsa deiliskipulagið ásamt umhverfisskýrslu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5. 0812033 - Deiliskipulag vegna Vatnskarðsnámur
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Deiliskipulagstillagan er tekin fyrir aftur vegna úrskurðar úrskurðarnefndar skipulags- og umhverfismála nr.30/2012 í máli nr. 80/2011.
Bæjarstjórn samþykkir að endurauglýsa deiliskipulagið ásamt umhverfisskýrslu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
6. 1012003 - Tillaga um breytingu á aðal og deiliskipulagi í Svartsengi.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Deiliskipulagstillagan er tekin fyrir aftur vegna úrskurðar úrskurðarnefndar skipulags- og umhverfismála nr.30/2012 í máli nr. 80/2011.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að endurauglýsa deiliskipulagið ásamt umhverfisskýrslu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
7. 1210039 - Skipulagslýsing vegna aðalskipulagsbreytingar á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030
Skipulags-og umhverfisnefnd leggur til tvær breytingar á Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030.
Annarsvegar er um að ræða breytingu vegna fráveitulagnar frá niðurdælingarveitu í Svartsengi út í sjó, svæðið afmarkað með rauðri brotalínu á skipulagsuppdrætti.
Tilgangur aðalskipulagsbreytingarinnar er að uppfylla skilyrði í starfsleyfi orkuversins í Svartsengi.
Hinsvegar er um að ræða breytingu á þéttbýlisuppdrætti gildandi Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030,
miðbæjarsvæði Grindavíkur, svæði afmarkað með rauðri brotalínu á skipulagsuppdrætti.
Tilgangur aðalskipulagsbreytingarinnar er að skapa umgjörð um lifandi miðbæ í Grindavík.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að kynna aðalskipulagsbreytinguna ásamt umhverfisskýrslu skv. 2.mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
8. 1209014 - Ósk um breytingu á deiliskipulagi Norðurhóps
Til máls tóku: Guðmundur
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Skipulags-og umhverfisnefnd leggur til breytingu á deiliskipulagi Norðurhóps sem felst í því að breyta lóðum við Norðurhóp 2-18 sem eru raðhúsalóðir í þrjár parhúsalóðir.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.
9. 1211046 - Tjaldsvæði - útboðsgögn
Til máls tóku: Bæjarstjóri, Guðmundur og Dagbjartur
Tillaga að útboðsgögnum lögð fram.
Bæjarráð leggur til að tillagan verði samþykkt.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna.
10. 1210089 - Vatnsmælabrunnur á stofnæð við Ránargötu
Undirritaður samningur samþykktur samhljóða.
11. 1210060 - Fjárhagsáætlun SSS og sameiginlega rekinna stofnanna 2013
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun SSS fyrir árið 2013. Heildarframlög Grindavíkurbæjar eru 53.811.000 kr. Öll framlög hafa verið færð inn í tillögu að fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar fyrir árið 2013.
12. 1211091 - Ákvörðun um álagningarhlutfall útsvars árið 2013, sbr. 20. gr. laga nr. 4/1995
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Hilmar og Páll Valur
Forseti bæjarstjórnar leggur til að álagningarhlutfall útsvars árið 2013 verði 14,28%. Tekið hefur verið tillit til þeirrar tillögu í fjárhagsáætlun 2013 sem liggur fyrir fundinum.
Breytingatillaga
Fulltrúi D-lista leggur til að álagningarhlutfall útsvars verði 14,08% fyrir árið 2013.
Greinargerð
Undanfarin ár hafa útsvarstekjur Grindavíkurbæjar aukist meira en áætlanir hafa gert ráð fyrir og aldrei meira en árið 2012 eða um 70 milljónir umfram áætlun.
Þetta ásamt þeim góða árangri sem náðst hefur á þessu kjörtímabili við að snúa taprekstri A- hluta bæjarsjóðs í afgang upp á 140 milljónir fyrir rekstrarárið 2013, gefur ástæðu til þess að lækka útsvarsprósentuna þannig að heimilin í Grindavík verði vör við það og eftirsóknara verði t.d. fyrir sjómenn er róa á grindvískum bátum að flytjast hingað.
Tillagan er felld með 6 atkvæðum.
Kl. 17:35 er tekið fundarhlé.
Fundarhléi lauk kl. 17:40
Bæjarfulltrúar B-, G- og S-lista telja mikilvægt að stíga varlega til jarðar og eiga borð fyrir báru. Ástandið í samfélaginu er viðkvæmt, ekki er vitað hvaða afleiðingar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu munu hafa á Grindavík, fjallað hefur verið um verkbann á sjómenn og á næsta ári munu fleiri atvinnulausir einstaklingar verða á framfæri sveitarfélaga. Einnig er ljóst að tekjur Grindavíkurbæjar hafa vaxið hratt síðustu árin og óljóst er hvort sú þróun verði áfram. Betra er að lækka útsvar um 0,20% fyrir fjárhagsáætlun ársins 2013 og vonandi verður hægt að lækka útsvarið meira að ári.
Bæjarfulltrúar B- G- og S-lista
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna um 14,28% útsvarshlutfall og felur bæjarstjóra að tilkynna fjármálaráðuneytinu fyrir 15. desember í samræmi við 20. gr. laga nr. 4/1995.
13. 1211023 - Álagningarreglur fasteignagjalda 2013
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu fór yfir tillöguna, en hún felur í sér óbreytt hlutföll frá árinu 2012 að því undanskildu að vatns-og fráveitugjöld lækka úr annarsvegar 0,14% og hinsvegar 0,13 í 0,11% af fasteignamati.
Sorphirðu-og sorpeyðingargjöld hækka samtals um 1.210 kr. á ári og aukavatnsgjald hækkar úr 15 í 16 kr./m3
Aðrir sem til máls tóku: Guðmundur
Álagningarreglur fasteignagjalda 2013:
1. Fasteignaskattur
1.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður)............ 0,31% af fasteignamati húss og lóðar
1.2. Opinberar byggingar (b-liður)...... 1,32% af fasteignamati húss og lóðar
1.3. Annað húsnæði (c-liður)............ 1,65% af fasteignamati húss og lóðar
2. Holræsagjald
2.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður)............ 0,11% af fasteignamati húss og lóðar
2.2. Opinberar byggingar (b-liður)...... 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
2.2. Annað húsnæði (c-liður)............ 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3. Vatnsgjald
3.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður)............ 0,11% af fasteignamati húss og lóðar
3.2. Opinberar byggingar (b-liður)...... 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3.3. Annað húsnæði (c-liður)............ 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3.4. Aukavatnsgjald..................... 16 kr/m3 vatns
4. Sorphreinsunargjald/Tunnuleiga
4.1. Íbúðarhúsnæði...................... 14.225 kr. tunnu pr. ár
5. Sorpeyðingargjald
5.1. Íbúðarhúsnæði...................... 23.210 kr. tunnu pr. ár
6. Lóðarleiga
6.1. Íbúðahúsalóðir..................... 1,20% af fasteignamati lóðar
6.2. Lóðir v. opinberra bygginga........ 2,00% af fasteignamati lóðar
6.3. Lóðir v. annað húsnæði............. 1,60% af fasteignamati lóðar
7. Rotþróargjald
7.1. Rotþróargjald...................... 10.000 kr. pr. rotþró pr. ár
8. Fjöldi gjalddaga........................ 10
1/2, 1/3, 1/4, 1/5, 1/6, 1/7, 1/8, 1/9, 1/10 og 1/11 2013
Heilarfjárhæð á einn gjalddaga: 20.000
Álagningarreglur fasteignagjalda eru samþykktar samhljóða.
14. 1211047 - Þjónustugjaldskrár 2013
Tillaga að þjónustugjaldskrá 2013 lögð fram. Almennt hækka gjaldskrár um 5% í samræmi við verðlagsbreytingar.
Greiðsluþátttaka foreldra í skólamáltíðum grunnskóla verði 60% af innkaupsverði. Áætlað er að innkaupsverð frá Skólamat verði um 540 kr. frá 1. janúar 2013, þannig að greiðsluþátttaka foreldra verði um 325 kr.
Gildistaka 1. janúar 2013, nema annað sé tekið fram
Leikskólagjöld
Tímagjald.............................. 3.140
Tímagjald, einstæðir foreldrar......... 2.370
Viðbótar 15 mín, fyrir................. 1.050
Viðbótar 15 mín, eftir................. 1.050
9. tíminn, almennt gjald............... 7.860
9. tíminn, einstæðir foreldrar......... 7.860
Afsláttarreglur:
Systkinaafsl. 2. barn 50% af gjaldi
Systkinaafsl. 3. barn og fleiri, vistun frítt en greitt fyrir mat og hressingu
Áfsláttur til námsmanna. Sama afsláttargj. og einstæðir og báðir séu í fullu námi.
Hressing (morgun/síðdegi)............. 2.320
Hádegismatur........................... 4.390
Tónlistarskólagjöld, gildistaka 1.8.2013
Fullt hljóðfæranám.............................. 55.060
Hálft hljóðfæranám.............................. 33.150
Fullt söngnám................................... 64.040
Hálft söngnám................................... 42.140
Fullt aukahljóðfæri............................. 36.740
Hálft aukahljóðfæri............................. 21.740
Blásarasveit.................................... 15.120
Hljóðfæraleiga.................................. 5.140
Hljóðfæranámskeið, hópur........................ 14.610
Söngnámskeið, hópur............................. 42.700
Systkinaafsláttur 2. barn....................... 50%
systkinaafsláttur 3. barn....................... 75%
Sundlaug
Stakt gjald barna............................... 250
Stakt gjald fullorðinna......................... 450
10 miða kort, börn.............................. 2.000
10 miða kort, fullorðnir........................ 3.310
3 mánaða kort fullorðnir........................ 7.900
Árskort, fullorðnir............................. 21.000
Árskort fjölskyldu.............................. 39.900
Árskort barna 6 - 18 ára........................ 2.000
Börn 0- 5 frítt
Afsláttur til aldraðra og öryrkja 50% afsl.
Fríkort send út til þeirra sem hafa lögheimili í Grv.
Leiga á handklæðum.............................. 400
Leiga á sundfatnaði............................. 400
Magnkaup árskorta
20-99 árskort (pr. stk árskorts)............ 16.800
100-199 árskort (pr. stk árskorts)........... 12.600
200 eða fleiri árskort (pr. stk. árskorts).. 8.925
Leikjanámskeið
Tveggja vikna námskeið 1/2 dagur................ 6.500
Tveggja vikna námskeið allan daginn............. 10.000
Pössun milli 8-9 og 16-17, kr. barn............. 250
Systkinaafsláttur 2. barn....................... 50%
systkinaafsláttur 3. barn....................... 75%
Bókasafn
Árgjald, 16-67 ára (ca 150 - 200 aðilar)........ 1.600
Leiga á DVD..................................... 300
Leiga á tungumálanámsk.......................... 300
Leiga á margmiðlunarefni........................ 300
Sekt á bækur, kr. dag........................... 20
Sekt á CD....................................... 20
Sekt á DVD og margmiðlunarefni pr. dag.......... 50
Þak á sektir................................ 2.000
Internet, fyrstu 15. mín........................ 150
Internet 30 mín................................. 250
Internet klst................................... 400
Börn, öryrkjar, ellilífeyrisþegar fá kort sér að kostnaðarlausu.
Frátekt á bók kr/stk............................ 50
Vegna skemmda eða glataðra gagna
Bækur/hljóðbækur............................ 1.000
Tungumálanámskeið........................... 3.000
Mynddiskur.................................. 3.000
Tímarit..................................... 500
Nýtt eða nýlegt efni........................ kaupverð
Grunnskóli
Skólamáltíðir, hluti foreldra................... 60%
Samkomusalur, hálfur dagur...................... 15.000
Samkomusalur, heill dagur....................... 25.000
Skólastofur, hálfur dagur....................... 7.000
Skólastofur, heill dagur........................ 10.000
Gisting, pr mann................................ 1.000
Skólasel
Allt að 20 tímar pr mánuð....................... 6.070
Frá 21-40 pr mánuð.............................. 10.920
41-60 tímar pr mánuð............................ 15.990
61-80 tímar pr mánuð............................ 20.840
Systkinaafsláttur 2. barn....................... 50%
systkinaafsláttur 3. barn....................... 75%
Tjaldsvæði
Gistinótt pr einstakling........................ 1.100
Gistináttagjald pr. gistieining................. 100
Fjórða hver nótt frí
Yngri en 14 ára frítt
Rafmagn á sólarhring............................ 800
Útleiga á þjónustuhúsi
Hálfur dagur............................... 15.000
Heill dagur................................ 25.000
Hljóðkerfi
sólarhringur.................................... 30.000
Kvennó, félagsmiðstöðin Þruman
Leigugjald húsnæðis pr klst..................... 5.250
Íþróttamannvirki
Verð pr klst
Hópið........................................... 11.600
Íþróttahús:
Stóri salur, allur.............................. 5.600
Stóri salur, hálfur............................. 2.950
50% álag vegna leikja........................... 2.850
Litli salur..................................... 2.650
Skemmtanir...................................... 11.000
Við bætast stefgjöld sem miðast við gestafjölda 40-50 þús
Vinnuskóli
Sláttur fyrir aldraða og öryrkja, garður að 100m2 pr. slátt.......... 2.000
Sláttur fyrir aldraða og öryrkja, garður að 100m2 - 200m2 pr. slátt.. 4.000
Slökkvilið
Tækifærisleyfi................................... 9.070
Tækifærisleyfi með skoðun........................ 27.190
veitingaleyfi.................................... 9.070
Veitingaleyfi með skoðun......................... 27.190
Brennuleyfi...................................... 9.070
Brennuleyfi með skoðun........................... 27.190
Flugeldasala..................................... 9.070
Flugeldasala með skoðun.......................... 27.190
Gistiheimili..................................... 9.070
Gistiheimili með skoðun.......................... 27.190
Hótel............................................ 9.070
Hótel með skoðun................................. 27.190
Eldvarnareftirlit................................ 9.070
Vinna pr. klst................................... 9.070
Slökkvibíll 24-131............................. 26.800
Slökkvibíll 24-132............................. 26.800
Slökkvibíll 24-151 tankur m / dælu.............. 26.800
Slökkvibíll 24-171 tækjabíll.................... 9.280
Körfubíll........................................ 32.750
Lausar dælur bensín.............................. 4.260
Lausar dælur rafmagn............................. 4.260
Vatnsuga......................................... 8.190
Rafstöð.......................................... 8.190
Hleðsla á lofthylkjum fyrir kafara............... 1.240
Þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar er samþykkt samhljóða
15. 1111061 - Þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar 2012
Hafnarstjórn leggur til breytingu á þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar fyrir árið 2013. Almennt hækkar gjaldskráin um 5% í samræmi við verðlagsbreytingar, en aflagjöld verði óbreytt.
Gjaldskrá 2013 kr.
Lestargjöld................................... 12,35
Bryggjugjöld.................................. 6,39
Lestar og Bryggjugjöld........................ 86,94
lámarksgjald 20-50 BT......................... 9.537,15
Smábátagjald.................................. 6.210,60
Smábátlámark pr dag........................... 310,81
Einkaviðlega.................................. 11.854,50
Vörugjöld 1 flokkur........................... 274,37
Vörugjöld 2 flokkur........................... 527,84
Vörugjöld 3 flokkur........................... 570,47
Vörugjöld 4 flokkur........................... 1.525,34
Aflagjald..................................... 0,02
Farþegagjald.................................. 94,50
Farþegagjald.................................. 48,30
Lóðsgjald fast................................ 3.307,50
Lóðsgjald pr brt.............................. 10,94
Öryggisgjald.................................. 32.182,50
öryggisvarsla pr klst......................... 4.202,00
Festargjald................................... 10.746,75
Fluttur hafnsögumaður......................... 23.710,05
Aðstoð utan hafnar............................ 38.780,70
aðstoð innan hafnar dráttarbáts............... 30.052,05
Vatnsgjöld.................................... 238,35
Heitt vatn.................................... 536,55
Kalt vatn smábáta pr löndun................... 121,80
Rafmagnssala kr kwst.......................... 13,31
Tengigjald.................................... 1.194,60
Yfirvinnuútkall hafnavarða pr klst............ 4.011,00
Löndunargjajald yfir 2000 kg.................. 315,00
Löndunarkranagjald 0,3 - 2000 kg.............. 631,05
Almenn viktun................................. 150,15
Skráningagjald í Gaflinn...................... 74,55
Lámarks vogargjald fyrir einst viktun......... 892,50
Viktar og skræaningagjald Fiskmarkað.......... 198,45
Yfirvinnuútkall eftir kl 17 og um helgar...... 4.011,00
Sorphirðugjöld skip minni en 10 T............. 551,25
Sorphirðugjöld skip 10 - 100 T................ 2.370,90
Sorphirðugjöld skip 100-200 T................. 4.740,75
Sorphirðugjöld skip stærri en 200 T........... 4.785,90
pr kg......................................... 22,79
Gjaldskráin er samþykkt samhljóða.
16. 1211024 - Tekjuviðmið 2013 vegna afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignaskatti og fráveitugjaldi.
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslu kynnti tillögu að tekjuviðmiðum 2013 vegna afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignaskatti og fráveitugjaldi fyrir árið 2013. Viðmiðin hækka um 5% frá árinu 012.
Aðrir sem til máls tóku: Guðmundur
Bæjarstjórn samþykkir tekjuviðmiðin samhljóða
17. 1112041 - Þjónustumiðstöð, útvíkkun á starfsemi
Til máls tóku: Guðmundur, Bryndís og Páll Valur
Með vísan til minnisblaðs sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs dags. 8. október leggur bæjarstjóri til að sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs verði heimilt að breyta starfslýsingu byggingafulltrúa og fela honum mannaforráð og ábyrgð á verkefnum þjónustumiðstöðvar.
Í tillögunni felst að byggingafulltrúa verður falin ábyrgð á stjórn og mannahaldi í þjónustumiðstöð með það að markmiði að bæta þjónustu og efla fyrirbyggjandi viðhald á eignum Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð leggur til að tillagan verði samþykkt.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 5 atkvæðum, Guðmundur og Páll Gíslason sitja hjá.
Bókun
Með þessari ákvörðun meirihlutans að fjölga um 2 stöðugildi við áhaldahúsið frá því sem nú er, er snúið frá þeirri ákvörðun, að ekki mætti fjölga stöðugildum við stofnanir bæjarins, sem fylgt hefur verið undanfarin ár og forstöðumönnum bæjarins var falið að fylgja við vinnslu fjárhagsáætlunarinnar. Fulltrúa D- lista finnst þetta röng forgangsröðun.
Fulltrúi D - lista
Fundarhlé tekið kl. 18:10
Fundarhléi lauk kl. 18:15
Bókun
Með tillögunni er verið að breyta áherslum þannig að fækkað er um 50% stöðugildi hjá bæjarskrifstofunni og í staðinn aukið um 50% stöðugildi í þjónustumiðstöðinni. Þar af leiðandi er ekki verið að fjölga starfsfólki. Þau stöðugildi sem fulltrúi D-lista misskilur sem viðbótarstöðugildi eru stöðugildi sem fyrir voru í fjárhagáætlun síðustu ára og stöðugildi er fulltrúi D-lista hefur áður samþykkt. Nú er eingöngu verið að ráða í þau stöðugildi er losnuðu fyrr á árinu. Með sömu rökum og D-listinn beitir í þessu máli er hann að gefa í skyn að aldrei megi ráða í þær stöður er losna í bæjarfélaginu án samþykkis bæjarstjórnar. Heildaraukakostnaður við þessa breytingu er um 2,3 milljónir kr.
Fulltrúar B-, G- og S-lista.
18. 1207056 - Fjárhagsáætlun 2013 og þriggja ára rammaáætlun
Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2013 ásamt 3 ára rammaáætlun er tekin til síðari umræðu.
Bæjarstjóri fór yfir helstu fjárhagsstærðir í áætluninni.
Aðrir sem til máls tóku: Bryndís, Páll Valur og Guðmundur
Bókun
Rekstrarniðurstaða sveitarsjóðs 2013, þ.e. A-hluta, fyrir fjármagnsliði, er áætluð 70,6 milljónir í afgang. Hinsvegar er áætlaður rekstrarafgangur 141 milljónir kr.að teknu tilliti til vaxtatekna af hitaveitusjóði og öðrum fjármagnsliðum. Í samanteknum reikningsskilum er gert ráð fyrir afgangi að fjárhæð 185,9 milljónum króna árið 2013.
Í meðfylgjandi töflu má sjá áætlaða rekstrarniðurstöðu áranna 2013-2016.
áætlun áætlun áætlun áætlun
í þús. kr. 2013 2014 2015 2016
Rekstrarniðurstaða A hluta 139.302 148.465 133.830 159.006
Rekstrarniðurstaða samstæðu (A+B hluta) 183.982 198.267 188.473 217.486
Heildareignir í samanteknum reikningsskilum eru áætlaðar í árslok 2013, 7.581 milljónir kr. Þar af er áætlað að innlán standi í um 1.075 milljónum kr. Heildarskuldir og skuldbindingar eru áætlaðar 1.425 milljónir kr. Þar af er lífeyrisskuldbinding um 425 milljónir króna.
Vaxtaberandi skuldir eru áætlaðar um 774 milljónir króna í árslok 2013. Þar af eru langtímaskuldir við lánastofnanir 291,4 milljónir kr. Skuldir og skuldbindingar bæjarsjóðs Grindavíkurbæjar sem hlutfall af heildartekjum eru 69,1%, áður en tekið er tillit til heimildar til lækkunar vegna lífeyrisskuldbindinga.
Veltufé frá rekstri í samanteknum reikningsskilum árið 2013 er áætlað um 401 milljónir kr. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum er áætluð um 669 milljónir króna og afborganir langtímalána eru áætlaðar 30 milljónir króna.
Til fjármögnunar framkvæmda, umfram það sem reksturinn stendur undir, mun þurfa að taka 296 milljónir af bankainnistæðu. Handbært fé í árslok 2013 er áætlað 1.075 milljónir króna.
Fjárhagsáætlun ársins 2013 er unnin út frá markmiðum sem rædd voru á 1297. fundi bæjarráðs og leysa af hólmi þau markmið sem bæjarstjórn setti á 401. fundi þann 17. nóvember 2010. Þau eru:
Árið 2013. Jákvæð rekstrarniðurstaða samstæðu, þ.e. A- og B-hluta. Engar vaxtatekjur verði nýttar til rekstrar, eingöngu til fjárfestinga eða til að auka við handbært fé Grindavíkurbæjar. Sem þýðir þá að afgangur þarf að vera meiri eða jafnmikill og vaxtatekjur.
Árin 2014- 2016. Rekstur A-hluta sveitarfélagsins verði í jafnvægi, þ.e. skatttekjur og þjónustutekjur standi undir rekstri málaflokka og sjóða A-hluta. Jákvæð rekstrarniðurstaða samstæðu, þ.e. A- og B-hluta. Engar vaxtatekjur verði nýttar til rekstrar, eingöngu til fjárfestinga eða til að auka við handbært fé Grindavíkurbæjar. Sem þýðir þá að afgangur þarf að vera meiri eða jafnmikill og vaxtatekjur.
Bæjarráð óskaði umsagnar PwC um áætlaðar fjárfestingar á árinu 2012, í samræmi við ákvæði 65. gr. laga nr. 45/1998 um sveitarfélög. Fjárfestingar ársins 2013 eru að mestu framkvæmdir sem frestuðust á árinu 2012 og er því byggt á sömu umsögn. Í umsögninni kemur fram að áætluð áhrif fjárfestinga á íþróttasvæði á rekstrarreikning bæjarins muni nema um 44-48 milljónum á ári fyrstu 10 árin frá því mannvirkin eru tilbúin. Þar af er árlegur viðbótarrekstrarkostnaður vegna mannvirkjanna áætlaður 5,5- 9 milljónir. Aðrir liðir eru hækkun afskrifta og vaxtatap. Áhrif fjárfestingarinnar á sjóðsstreymi munu verða 27,5-31 milljón kr í minna veltufé á ári.
Samkvæmt fyrirliggjandi áætlun fyrir árin 2013-2016 mun bæjarsjóður ráða við þann aukna rekstrarkostnað sem verður samfara framkvæmdunum. Auk þess er gert ráð fyrir vaxandi tekjum á næstu árum samkvæmt þriggja ára áætlun.
Bæjarstjórn hefur því trú á að bæjarsjóður muni ráða við aukinn rekstrarkostnað vegna framkvæmdanna.
Bókun
Meirihlutinn sýnir gríðarlega mikla framkvæmdagleði með því að fara í framkvæmdir upp á um 700 milljónir á næsta ári.
Öllum hefur verið gert að sæta aðhaldi í rekstri til að ná tökum á fjármálum Grindvíkurbæjar og það hefur tekist með óeigingjörnu vinnuframlagi starfsmanna bæjarins í samvinnu við bæjarstjórn. Þessum árangri er sýnd lítil virðing og stefnt í hættu með áætluðum framkvæmdum sem munu kalla á aukinn rekstrarkosnað upp á tugi milljóna. Það að ráðast í tvær stórar framkvæmdir á sama tíma er mjög vitlaus. Þetta getur leitt til þess að útboð hækki og verkefni færist frekar til aðila utan bæjarfélagsins.
Fulltrúi D- lista
Fundarhlé tekið í 10 mínútur
Bæjarfulltrúar B-, G- og S-lista vilja benda á að þær framkvæmdir sem farið verður í á næsta ári snúa allar að því að búa til betri aðstöðu fyrir starfsfólk bæjarins og samnýta starfsfólkið betur svo hægt sé að veita betri þjónustu til bæjarbúa. Öllum er ljóst að húsnæði þessar stofnana og aðstaða starfsfólks sem þar vinnur er löngu komið til ára sinna. Bæjarfulltrúar B-, G- og S-lista eru sammála því að mikilvægt er að fara í framkvæmdir á tímum sem þessum.
Sveitarfélögum ber skylda til þess að framkvæma þegar niðurskurður er í samfélaginu enda mun ódýrara að framkvæma þá en í góðæri. Einnig er mikilvægt að taka fram að ástæðan fyrir því að miklar framkvæmdir verða á árinu 2013 er vegna þess að framkvæmdir við íþróttahúsið og tónlistarskólann/bókasafnið áttu að hefjast á þessu ári en töfðust.
Bæjarfulltrúar B-, G- og S-lista.
Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2013, Guðmundur situr hjá.
Bæjarstjórn vill einnig þakka starfsfólki bæjarins samstarfið og þeirra framlag við fjárhagsáætlunargerðina.
19. 1209029 - Flotbryggjur fyrir smábáta
Hafnarstjórn óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun að fjárhæð 5.000.000 kr.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann sem kemur til lækkunar á handbæru fé.
20. 1203055 - Útboðsgögn og verklýsing v / breikkun innri innsiglingarrennu
Afgreitt á fundi bæjarstjórnar 30. maí.
21. 1209027 - Kvíabryggja, viðhald
Hafnarstjórn óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun að fjárhæð 5.700.000 kr. vegna viðhalds á Kvíabryggju.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann sem kemur til lækkunar á handbæru fé.
22. 1209038 - Yfirlögn bundið slitlag smátahöfn
Hafnarstjórn óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun að fjárhæð 9.000.000 kr.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann sem kemur til lækkunar á handbæru fé.
23. 1211018 - 21.fundur Heklunnar fundargerð.
Fundargerðin er lögð fram.
24. 1211051 - 232.fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja.
Fundargerðin er lögð fram.
25. 1211010 - 648.fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Fundarboð og fundargerð.
Fundargerðin er lögð fram.
26. 1211006 - 82.fundur þjónustuhóps aldraðra haldinn á skrifstofu S.S.S.
Fundargerðin er lögð fram.
27. 1211064 - Fundargerð 37. fundar samvinnunefndar um svæðisskipulag á Suðurnesjum
Fundargerðin er lögð fram.
28. 1211089 - Fundargerð 430. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Fundargerðin er lögð fram.
29. 1211015 - Fundargerðir fyrsta og annars fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Fundargerðin er lögð fram.
30. 1211088 - Fundargerðir 316. og 317. funda skólanefndar FS
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
31. 1211012F - Fræðslunefnd - 13
Fundargerðin er lögð fram.
32. 1211015F - Félagsmálanefnd - 15
Fundargerðin er lögð fram.
33. 1211010F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 19
Fundargerðin er lögð fram.
34. 1211003F - Frístunda- og menningarnefnd - 15
Fundargerðin er lögð fram.
35. 1211008F - Hafnarstjórn Grindavíkur - 415
Fundargerðin er lögð fram.
36. 1211004F - Bæjarráð Grindavíkur - 1303
Fundargerðin er lögð fram.
37. 1211011F - Bæjarráð Grindavíkur - 1304
Fundargerðin er lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:25.