Áhaldahús / Ţjónustumiđstöđ

  • Grindavíkurbćr
  • 16. mars 2009

Þjónustumiðstöð Grindavíkur
Hafnargötu 24, sími 426 8402.
Bakvaktanúmer (eftir kl. 17): 660 7343.
Netfang: thjonusta@grindavik.is
Opið er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 7 til 16:45 og föstudaga frá 7 til 12.

Yfirmaður þjónustumiðstöðvar er Siguður Rúnar Karlsson, Sími 660 7302 -  siggigh@grindavik.is

Þjónustumiðstöðin sér um alla almenna þjónustu við íbúa bæjarins, s.s. viðhald á fasteignum og tækjum bæjarins, snjóruðning, hreinsunarátak og fjölmargt fleira. Hægt er að panta sorptunnur og varahluti í þær.


Snjómokstur:
Í forgangi eru aðalumferðargötur þannig að fært sé að Grindavíkurvegi, skólum, leikskólum, slökkviliðsstöð, heilbrigðisstofnun, niður að höfn, og ákveðinn öryggishring sem nýtist flestum bæjarbúum. Samhliða snjómokstri eru almenningsbílastæði í miðbænum mokuð enda gerð þeirra kostuð af sveitarfélaginu. Plön og heimkeyrslur við íbúðarhús og fyrirtæki eru ekki mokuð á kostnað bæjarins. Mokstur vegna öryrkja er við sérstakar aðstæður framkvæmdur samkvæmt beiðni félagsþjónustunnar.

Forgangur snjómoksturs:
Á meðfylgjandi mynd er að finna yfirlit yfir forgang snjómoksturs. Í forgangi 1 eru aðalumferðargötur (merkt blátt) þannig að fært sé að Grindavíkurvegi, skólum, leikskólum, slökkviliðsstöð, heilbrigðisstofnun, niður að höfn, og ákveðinn öryggishring sem nýtist flestum bæjarbúum.  Í forgangi 2 eru svo íbúðarhverfi (merkt grænt). 

 

Á kortinu hér að neðan er að finna yfirlit snjómkstur á vegum Grindavíkurbæjar á bílaplönum. Þar eru grunnskólarnir og leikskólarnir í forgangi 1 (merkt rautt) en síðan koma íþróttamannvirki, Víðihlíð og fleiri aðilar í forgangi 2.


Starfsmenn þjónustumiðstöðvar:


Deildu ţessari frétt

A?RAR S??UR


Nýjustu fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum vegna íţróttaafreka 2021

  • Íţróttafréttir
  • 11. janúar 2021

Körfuboltaskóli UMFG 2020 ađ hefjast

  • Íţróttafréttir
  • 23. júní 2020

Kristinn Pálsson til Grindavíkur

  • Körfubolti
  • 16. maí 2020

Körfuboltaćfingar hefjast aftur mánudaginn 4.maí

  • Íţróttafréttir
  • 28. apríl 2020

Ćfingar óbreyttar um helgina

  • Íţróttafréttir
  • 13. mars 2020

Matthías Örn Íslandsmeistari í pílukasti

  • Íţróttafréttir
  • 9. mars 2020

Jón Júlíus ráđinn framkvćmdastjóri UMFG

  • Íţróttafréttir
  • 21. febrúar 2020

Herrakvöld í Gjánni í kvöld

  • Íţróttafréttir
  • 21. febrúar 2020

Framhalds ađalfundur Knattspyrnudeildar Grindavíkur

  • Íţróttafréttir
  • 19. febrúar 2020