Reglur

Unglingar eru velkomnir í félagsmiðstöðina Þrumuna samkvæmt dagskrá hverju sinni, ef eftirfarandi reglum er fylgt.

1. Gestum Þrumunnar ber að koma fram af prúðmennsku og háttvísi. Þeir ásamt starfsfólki skulu koma fram af fyllstu kurteisi hverjir við aðra.

2. Unglingar sýni góða umgengni og forðist óþarfa hávaða. Þeir fari vel með þau tæki og húsgögn sem eru á staðnum og nýti sér þær ruslafötur sem eru staðsettar víðs vegar um húsnæðið. Sá unglingur sem verður valdur að einhverjum skemmdum á tækjum, tólum og eða húsgögnum félagsmiðstöðvarinnar greiðir fyrir skemmdirnar.

3. Neysla áfengis og/eða vímuefna er óheimil í/og við Þrumuna. Verði unglingur staðinn að, eða leiki grunur á neyslu eða meðferð slíkra efna, er kallað umsvifalaust á forráðamann og/eða aðra er málið varðar og unglingurinn sóttur. Ef grunur reynist réttur missir unglingurinn um leið rétt til að stunda skemmtanir á vegum Þrumunnar um ákveðinn tíma.

4. Tóbaksnotkun eru bönnuð í og við Þrumuna. Reynist unglingur vera með tóbak í fórum sínum skal það gert upptæk og því eytt. Ef ítrekuð brot eru framin hefur starfsmaður leyfi til að vísa setja ungling í bann um stundasakir.

5. Það er skylda að fara úr skóm í anddyri og utanyfirfatnaður skal hengdur í fatahengi. Engin ábyrgð er tekin á fatnaði og öðrum eigum þeirra sem sækja félagsmiðstöðina.

6. Starfsmaður hefur leyfi til að vísa unglingum út ef um óæskilega hegðun er að ræða.

7. Öllum ágreiningi sem upp kann að koma í málum þeim sem reglurnar taka til skal vísa til sviðssstjóra frístunda- og menningarsviðs sem er yfirmaður Þrumunnar.