Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar er nú komin á fullt skrið. Þar fer fram ýmiskonar frístundastarf fyrir alla aldurshópa. Miklar breytingar hafa átt sér stað á starfsemi Þrumunar frá síðasta ári, bæði nýjir starfsmenn og ný aðstaða. Félagsmiðstöðin Þruman flutti í sumar úr Kvennó yfir í Grunnskóla Grindavíkur. Félagsmiðstöðin er því opin á skólatíma fyrir krakkana og geta þau því eytt bæði frímínútum og eyðum í stundatöflu í félagsmiðstöðinni sinni. Hefðbundið starf verður síðan á kvöldin eins og hefð er fyrir. Þruman ætlar að leggja aukna áherslu á Klúbbastarf í vetur og verða fjórir klúbbar í boði.
Áframhald verður á vinsælu Stráka- og Stelpuklúbbunum. Síðan verður boðið uppá Fjölmiðlaklúbb og Ævintýraklúbb.
Þruman er einnig í góðu samstarfi við félagsmiðstöðvar á Suðurnesjum og halda þær nokkrar skemmtanir á starfsárinu undir merkjum Samsuð. Síðan verður farið á stærstu Samfés viðburðina en það eru samtök allra félagsmiðstöðva á Íslandi.
5.-7. bekkur
Þruman bíður einnig upp á starfsemi fyrir 5. - 7. bekk tvisvar í viku eftir skóla:
• Miðvikudögum kl. 17:00-18:30 - Skipulögð dagskrá
• Föstudögum kl. 13:30-15:00 Opið hús
Þar er ýmislegt skemmtilegt gert t.d ratleikir, kappát,bíókvöld,bingó og margt fleira.
Opið er alla daga frá 8:00-14:00
8.- 10. bekkur kl. 20:00-22:00
Mánudaga - Stelpu og Strákaklúbbur (annan hvern mánudag)
Þriðjudaga - Opið hús
Miðvikudagar - Fjölmiðlakúbbur, Ævintýraklúbbur (annan hvern miðvikudag)
Fimmtudaga - Lokað
Föstudaga - Opið hús
Markmið Þrumunnar:
VIRKNI - VELLÍÐAN - VIRÐING - VÍÐSÝNI
Starfsemi Þrumunar tekur mið af æskulýðslögum nr. 70 frá 2007 en tilgangur þeirra er að styðja börn og ungmenni til þátttöku í æskulýðsstarfi. Með æskulýðsstarfi er átt við skipulagða félags- og tómstundastarfsemi þar sem börn og ungmenni starfa saman í frístundum sínum að hugsjónum, markmiðum og áhugamálum.
Nánari upplýsingar um dagskrá Þrumunnar má finna á heimasíðu Grindavíkurbæjar,
www.grindavik.is/thruman sem og á Facebook síðu Þrumunnar.