Í dag var haldinn íþróttadagur á öllum stigum. Nemendur í Hópskóla voru með fjölmargar skemmtilegar stöðvar fyrir sína nemendur þar sem hægt var að velja um ýmsa skemmtilega leiki. Á Ásabrautinni voru nemendur í 4.-6.bekk í fullu fjöri þar sem þau gátu m.a. farið í fótbolta, skellt sér í göngu- eða hjólatúr, spilað körfubolta, teygjutvist, skotbolta og bandý. Þá voru nemendur á unglingastiginu á íþróttasvæðinu og spiluðu m.a. fótbolta, blak, fóru í leiki og hjóla- og göngutúra. Einnig skelltu sér einhverjir í golf á vellinum fyrir neðan elliheimilið. Þá var sundlaugin vinsæl en um 50 nemendur skelltu sér í sund.
Að lokum skunduðu allir niður að Kviku og hittust á svæðinu sem nýlega fékk nafnið Húllið. Þar voru grillaðar pylsur og síðan kom enginn annar en Ingó Veðurguð og kom öllum í gírinn eins og honum er einum lagið. Ingó kom öllum í stuð og sama hvort það voru nemendur í 1.bekk, 8.bekk eða starfsfólk - það sungu allir og trölluðu með. Heldur betur frábær endir á þessum skemmtilega degi.
Þá ber að taka fram að skemmtun Ingó Veðurguðs var í boði Kvikunnar og pylsur og drykkir í boði Foreldrafélags Grunnskóla Grindavíkur. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir.