Eftir hádegið í dag komu nemendur af mið- og elsta stigi saman í salnum til að kveðja þau Einar Jón Ólafsson og Stefaníu Ólafsdóttur (Stellu) en þau munu bæði láta af störfum að loknu skólaárinu eftir áralangt starf við Grunnskóla Grindavíkur.
Halldóra myndmenntakennari hafði veg og vanda að viðburðinum en hún hefur undanfarnar vikur fengið nemendur til sín til að útbúa kveðjugjöf handa þeim Einari Jóni og Stellu frá nemendum skólans. Nemendur úr fjölmörgum bekkjum komu að gerð gjafanna sem voru leirskálar með skreytingum sem áttu við hvorn kennara fyrir sig.
Nemendur komu þeim Einari og Stellu á óvart og var þetta svo sannarlega skemmtileg stund í lok skólaársins, þó svo að við munum að sjálfsögðu sjá á eftir þeim báðum úr skólanum.