Nemendur í 10.bekk fengu góða heimsókn í dag þegar fulltrúi lögreglunnar ásamt hjúkrunarfræðingur komu í heimsókn og kenndu skyndihjálp. Nemendur voru áhugasamir og fengu síðan að sýna hvað þau höfðu lært.
Í lok dagsins héldu nemendur síðan afmæliskaffi þar sem allir komu með eitthvað á hlaðborð og er óhætt að segja að borðin hafi svignað undan kræsingunum.