Á hverju ári hafa nemendur 4.bekkja teiknað sjálfsmyndir sem síðan hafa verið settar upp á sýningu í Grunnskólanum. Að þessu sinni þurfti að laga sýninguna að aðstæðum í samfélaginu og því er hún í formi gluggasýningar þetta árið.
Búið er að setja upp myndirnar þannig að hægt er að skoða þær að utanverðu. Þær eru uppsettar í gluggunum í matsalnum á Ásabrautinni og því tilvalið fyrir foreldra og aðra áhugasama að skella sér í gönguferð og skoða myndirnar sem eru hver annarri glæsilegri.
Það er Halldóra myndlistarkennari sem hefur veg og vanda að uppsetningu sýningarinnar en hún hefur í mörg ár komið að þessu verkefni ásamt Höllu textílkennara.
Myndirnar verða uppi þar til á þriðjudag en þá verða þær teknar niður og síðan afhentar nemendum á skólaslitum.