Spurningakeppni miðstigsins er komin af stað og nú þegar er búið að ljúka fimm viðureignum. Framundan eru undanúrslit sem fara fram á þriðjudaginn og síðan úrslitaviðureign föstudaginn 22.maí.
Keppnin hefur spennandi og skemmtileg og greinilegt að nemendur hafa komið vel undirbúnir til leiks. Keppnin fer fram með því formi að bækur eftir ákveðna höfundar eru notaðar til spurningagerðar og hafa nemendur góðan tíma til að lesa bækurnar og reyna að leggja sem mest á minnið.
Í fyrstu viðureigninni þetta árið mættust 4.Á og 4.R. Það voru það krakkarnir í 4.Á sem höfðu betur og unnu sigur. Þau mættu síðan 5.K í 8-liða úrslitum og höfðu einnig betur þar.
4.S mætti 5.A í næstu viðureign og þar voru það 4.bekkingar sem fóru með sigur af hólmi eftir spennandi viðureign.
Þriðja viðureign 8-liða úrslita var á milli 6.GD og 5.S. Þar þurfti bráðabana til að finna sigurvegara og þar voru það nemendur 6.GD sem unnu góðan sigur.
Í síðustu viðureign 8-liða úrslita mættust 6.R og 6.G. Krakkarnir í 6.G höfðu betur og tryggðu sér þar með síðasta sætið í undanúrslitum.
Búið er að draga um hvaða lið mætast í undanúrslitum. Annars vegar mætast 4.S og 4.Á og hins vegar 6.G og 6.GD. Viðureigningar fara báðar fram á þriðjudag.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá þeim keppnum sem lokið er.