Mánudaginn 4. maí hefst skólahald með hefðbundum hætti. Þá koma nemendur í skólann skv. stundatöflu. Engar takmarkanir verða settar á fjölda nemenda. Nemendur mega nota öll sameiginleg svæði skólans, vera úti á skólalóð líkt og venjulega og engar takmarkanir eru í list- og verkgreinum, félagsmiðstöð, íþróttum eða sundi. Nemendur koma til með að borða í mötuneyti og skammta sér sjálfir.
Starfsmenn mega fara á milli nemendahópa en starfsmenn og allir fullorðnir í skólanum verða að virða 50 manna fjöldann og 2ja metra regluna. Auk þess þarf að viðhalda sótthreinsun og góðum þrifum.
Nánari upplýsingar verða veittar síðar um skólaslit, vorhátíð, vettvangsferðir o.fl. Mælst er til þess að ekki séu skipulagðir fjölmennir viðburðir nema þá án fullorðinna gesta utan skóla s.s. foreldra.
Forráðamenn eru hvattir til að vera í rafrænum samskiptum við umsjónarkennara.
Við biðjum forráðamenn að koma ekki inn í skólann með nemendum. Þegar Skólaseli lýkur verða nemendur tilbúnir í anddyrinu á þeim tíma sem vistun lýkur. Ef sækja þarf nemanda fyrr þá vinsamlegast hafið samband í síma 660-7321.
Mikilvægt er að heilbrigðir nemendur sæki skóla og engin breyting hefur orðið á skólaskyldu barna á grunnskólaaldri. Hins vegar er mikilvægt að nemendur komi ekki í skóla ef þeir sýna einkenni sem svipar til einkenna Covid-19 s.s. hita, hósta, bein- og vöðvaverki og þreytu.