Eftir veturinn og þegar snjóa leysir þá er sýnilegt mikið rusl. Krakkarnir í 4. Á vildu láta gott af sér leiða og fóru út í morgun og týndu rusl í nokkrum runnabeðum við skólann. Alls týndu þau í 2 ruslapoka en þau fóru einnig í bangsagöngu og að sjálfsögðu tóku þau poka með í gönguna og týndu jafnóðum rusl um leið og bangsar voru taldir.
Krakkarnir hvetja bæjarbúa að taka með sér poka í göngutúrana og plokka um leið og fegra þar með umhverfið sitt.
Fyrir
Eftir